
Arnþór Jónsson
Tvö afmælisbörn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:
Arnþór Kristján Jóhannes Jónsson (Addi rokk f. 1933) hefði átt afmæli í dag en hann lést 2019. Þessi skrautlegi tónlistarmaður og áhugaleikari kom víða við á ferli sínum, hann var Elvis eftirherma og starfrækti Tónatríóið og Tónabræður í mörg ár auk þess að vera í sveitum eins og Jónsbörnum, Como og Ómum. Margir muna eftir kappanum þegar hann birtist með Stuðmönnum í kringum Látúnsbarkakeppnina á níunda áratugnum, og svo aftur þegar umhverfisherferðin Græni herinn stóð sem hæst um aldamótin.
Þá hefði söngkonan Didda Jóns, Þuríður Jónsdóttir einnig átt þennan afmælisdag en hún lést árið 2019. Didda (fædd 1935) kom upphaflega úr Þingeyjarsýslu þar sem hún söng með Leiksystrum en sunnan heiða söng hún með ýmsum danshljómsveitum eins og Hljómsveit Óskars Guðmundssonar, Junior kvintett, Hljómsveit Aage Lorange og Hljómsveit Stefáns Þorleifssonar áður en hún fluttist vestur um haf en hún bjó í Bandaríkjunum til æviloka.
Vissir þú að sænsk-íslenska hljómsveitin Vikivaki starfaði um fimmtán ára skeið og gaf út nokkrar plötur á sínum tíma?