Hit Móses (1998)

Hit Móses

Hit Móses var rokksveit af þyngri gerðinni en hún kom frá Selfossi og var meðal þátttökusveita í Músíktilraunum vorið 1998.

Meðlimir sveitarinnar voru þeir Friðrik Einarsson gítarleikari, Birkir Jóakimsson bassaleikari, Vignir Andri Guðmundsson trommuleikari og Anton Örn Karlsson gítarleikari og söngvari. Sveitin komst ekki áfram í úrslit keppninnar og allt lítur út fyrir að hún hafi ekki starfað lengi.er