
Bárðarbúðarböðlarnir
Bárðarbúðarböðlarnir hafa starfað með löngum hléum allt frá árinu 1982 og jafnvel lengur en sveitin er vinahópur sem spilar einstöku sinnum þegar þeir eru í stuði.
Litlar upplýsingar er að finna um þessa sveit en árið 1982 sendi hún frá sér tuttugu laga plötu sem hafði að geyma efni sem tekið var upp á Hellissandi, en þaðan er sveitin.
Upplag plötunnar var tvö hundruð eintök en hún var gefin út af Roth Verlag sem stóð fyrir útgáfu á nokkrum plötum á sínum tíma. Platan hefur ratað í sjónvarpsþætti í Þýskalandi og í bók um Zappa coverlög enda er eitt slíkt á plötunni. Þeir sem spila og syngja á plötunni, sem ber nafnið Afurðir, voru Pálmi Almarsson, Vigfús Kr. Hjartarson, Sigfús Almarsson og Kristinn Kristjánsson.
Ekki liggur fyrir hversu samfellt Bárðarbúðarböðlarnir störfuðu en þó er staðfest að þeir voru til 2007 og 2014, fyrrnefnda árið mun sveitin hafa tekið upp nokkuð af efni á Arnarstapa sem á endanum varð platan Drimbur sem kom út 2016 en er ekki í nafni Böðlanna. Þá var Pálmi einn eftir af upprunalega hópnum en aðrir meðlimir sveitarinnar voru Sverrir Pálmason, Ægir Þórðarson, Kristinn Sigþórsson og Loftur Bjarnason.
Böðlarnir tróðu upp á þorpshátíð í Neshreppi utna Ennis (Hellissandur, Rif og Gufuskálar) árið 2016 í Hvítahúsinu í Krossavík og aftur 2018, þá voru í hljómsveitinni, Pálmi, Sigfús og Alfreð Almarssynir, Ingvi Þór [?], Ægir Þórðarson og Sigmar Sigfússon.
Mottó Böðlanna er og verður ef Böðlarnir eru á svæðinu þá þarf að böðlast.














































