Blúsbræður [5] (1997)

Hljómsveitin Blúsbræður starfaði í Keflavík árið 1997, hér er giskað á að sveitin sé ekki sama sveit og starfað hafði í bænum sjö árum áður.

Blúsbræður kepptu í Rokkstokk hljómsveitakeppninni í Keflavík árið 1997 og átti þ.a.l. lag á safnplötunni Rokkstokk 97, sem gefin var út í kjölfar keppninnar.

Engar upplýsingar finnast hins vegar um meðlimi sveitarinnar né um gengi hennar í Rokkstokk-keppninni.