Gaukar [2] (1976-79)

Tríó sem gekk undir nafninu Gaukar lék gömlu dansana og blandaða tónlist, og starfaði á höfuðborgarsvæðinu um nokkurra ára skeið á síðari hluta áttunda áratugarins. Sveitin lék mestmegnis í einkasamkvæmum en minna á dansstöðum borgarinnar. Gaukar störfuðu frá upphafi árs 1976 og fram á haustið 1979 en þá virðist hún hafa hætt störfum.

Meðlimir sveitarinnar voru þeir Þorkell Snævar Árnason gítarleikari, Jón Jónsson píanóleikari og Barði Ólafsson söngvari en Árni Ísaksson hljómborðsleikari leysti Jón af hólmi í ársbyrjun 1978.

Til stóð að Axel Einarsson hjá Icecross-records myndi gefa út plötu með Gaukum en af því varð aldrei.