Kvikindi
(Lag og texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)
Horfir yfir sviðið,
finn taktinn taka yfir,
þrengjast inn í mig.
Ljósin lýsa upp rakann,
þrýsti mér í gegn,
þessa þröngu leið.
Rennvot reyksúr augu
mæna, horfa á
án þess að sjá.
Allir litir
saman í einum dansi,
ó þessi litadýrð.
Öll heimsins kvikindi
á sama staðinn komin
sameinuð í eina sál,
syngja sama tungumál.
Svitinn límir fötin
þétt við limi langa,
togna, tælandi.
Froðan fellur úr munnum
framandi manna
líkt og blæðandi.
[af plötunni Nýdönsk – Hunang]














































