Níu gata tryllitæki
(Lag / texti: Fræbbblarnir / Steinþór Stefánsson og Valgarður Guðjónsson)
Bíll til sölu! Hefur átta gata nýuppgerða vél.
Stelpa fylgir, hefur brjóstmálin átján þumlunga.
Greiðsluskilmálar.
Milljón fyrirfram.
Rest á mánuði.
Barn í kaupbæti.
Varð að selja hann því hann var orðinn varahlutalaus.
Það vantaði alltaf eitthvað í þessa stelpu sem hann fann.
Greiðsluskilmálar.
Milljón fyrirfram.
Rest á mánuði.
Barn í kaupbæti.
Átta gata tryllitæki kom og sótti´ hana í kvöld.
Hún var fjórða litla gatið sem hann fann í september.
[af plötunni Fræbbblarnir – Viltu nammi væna]














































