Blikandi haf

Blikandi haf Lag og texti 12. september [Freymóður Jóhannsson] En hvað það er dásamlegt að dansa hér, dans við þig einmitt þetta lag. Endurminningarnar streyma móti mér. Manstu forðum þennan sama dag, er við stóðum frjáls og glöð á Bláteigsbrún. Blikandi hafið seiddi okkar þrá. Gáruðu flöt þess léttskreið fley með ljós við hún. Lagið…

Bjarkarlundur

Bjarkarlundur Lag og texti: Jenni Jónsson Hugur leitar heim til þín, hlýja, bjarta sveitin mín. Bláu fjöllin brött og há, berst mitt hjarta af þrá. Bjart er þá um Bjarkalund, blessuð sólin skín á grund. Ljósið vekur líf og önd við lofum Barðaströnd. Allt er fagurt, undurfrítt, elskulegt og blómum prýtt. Hátt til lofts, til…

Ástarkveðja

Ástarkveðja Lag / texti: erlent lag / Guðrún Pálsdóttir Ég syng um ást, um ást sem ekkert fær máð. Þá ást sem enginn fær ort um, og ei mun skráð. sem vetrarfrost, og vorblær þýður og hlýr, mun von mín um ást þína lifa sem ævintýr. Ó veröld, veröld sem tók þér og við þér…

Vaggi þér aldan

Vaggi þér aldan Lag / texti: erlent lag / Valgerður Ólafsdóttir Ég syng um farmann, sem fær ei sofið, einn fjarri vinum, þegar stormar gnauða. Og skipið veltist um á æstum öldunum, hans andvörp hverfa út í brimsins veðragný. Hann sér í anda tvær hvítar hendur, tvö hugljúf augu svo undir skær og blá, og…

Sumarauki

Sumarauki Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson Norðanrokið nístir merg og bein, nöpur hryðjan lemur kaldan stein, er við hefjum flug frá ættlandinu kalda í átt til suðurs skal á hlýrri slóðir halda. Sumarauki í Suðurlöndum, sældarlíf sem allir þrá. Í paradís á pálmaströndum, pyngjan tæmast oft vill þá. Liggja og stríplast strandargestir.…

Heimir

Heimir Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Grímur Thomsen Þeir spurðu Heimi’ er hann að Rín Hlymsdala kom úr borg: “Heyrist oss gráta harpan þín, hvað veldur þeirri sorg?” “Hún grætur frægan föður sinn, fær seint það tjónið bætt, hún grætur grimmu forlögin, er gengu’ yfir hennar ætt. Hún grætur harma’ og heiftarorð og hjartans…

Svanurinn minn syngur

Svanurinn minn syngur Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Halla Eyjólfsdóttir Svanurinn minn syngur. Sólu ofar hljóma ljóðin hans og heilla helgar englasveitir. Blómin löngu liðin líf sitt aftur kalla. Fram úr freðnum gljúfrum fossar braut sér ryðja. Svanurinn minn syngur sól í undirheima. Kyrrast kaldir vindar. Kætist allt sem lifir. Björgin þungu bifast; bergin…

Ég gleymi því aldrei

Ég gleymi því aldrei Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Halla Eyjólfsdóttir Ég gleymi því aldrei er svanirnir sungu, sveiflandi fannhvítum vængjunum létt. Hljóðfallið breyttist er bárurnar þungu að brjóstunum háhvelfdu féllu svo þétt. Þeir sungu um ást með svo töfrandi tónum, að titruðu klettar og gáfu af sér hljóð. Hvort mun frá himnum sá…

Þú eina hjartans yndið mitt

Þú eina hjartans yndið mitt Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Guðmundur Geirdal Þú eina hjartans yndið mitt í örmum villtra stranda, þar aðeins bjarta brosið þitt mig ber til draumalanda. Í þinni finn ég frjálsri brá svo fagrar innri kenndir, er seiða til sín traust og þrá í trú, sem hærra bendir. [sjá m.a.…

Ólgandi haf

Ólgandi haf Lag / texti: Guðjón Matthíasson / Árelíus Níelsson Á meðan sævarbylgjan bjarta birtir mér hafsins leyndarmál, þá finn ég ólga innst í barmi ókönnuð djúp í minni sál. Og þegar stormsins englasveitir ógnandi stíga trylltan dans. Þá verður lygnt á hafi hjartans í hljóðum draumi ég svíf til lands. Á meðan ólgar sær,…

Nótt á hafinu

Nótt á hafinu Lag og texti: Guðjón Matthíasson Í nótt ég held á hafið, þó hamist skýjatrafið, og nöpur norðankylja oft næði um bátinn minn. Ég stend þá einn og stýri í stormi um ránarkinn. En lengi er nótt að líða í lífsins stríði víða. Þótt lygni vind og lægi við ljós um dagmál hægir.…

Litli vin

Litli vin Lag / texti: erlent lag / Freysteinn Gunnarsson Bráðum færast árin yfir mig, einhvern tíma skil ég senn við þig. Mundu þá að rata réttan veg, reyndu að verða betri og meiri en ég. Það er eina óskin mín til þín, að þú hljótir forlög betri en mín. Þótt mér brygðist margt, litli…

Piparmeyja-Vínarkrus

Piparmeyja-Vínarkrus Lag / texti: Guðjón Matthíasson / Byggur Blái [dulnefni] Ég held ungar stúlkur ættu, að því vel að gá, enga angurapa í sig láta ná. Þótt þeir fagurt talað geti og góðu lofað mey. Best er vörn í blíðu og stríðu bara að segja nei. Veist er best í veröldinni að vera piparmey. Þegar…

Sólbrúnir vangar (Þjóðhátíðarlag 1961)

Sólbrúnir vangar (Þjóðhátíðarlag 1961) Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ) Sólbrúnir vangar, siglandi ský og sumar í augum þér. Angandi gróður, golan hlý og gleðin í hjarta mér. Söngur í lofti, sólin skær og svo eru brosin þín yndislegri en allt sem grær og ilmar og hjalar og skín. Ástin…

Leikur að vonum

Leikur að vonum Lag / texti: Ólafur Þórarinsson / Jónas Friðrik Guðnason Láttu ekki hatrið í heiminum ná þér, heimsku draga þig með sér af stað. Vísaðu grimmdinni og græðginni burtu, gegndu ekki neinum sem predikar það. Lífið er leikur að vonum, lífið er söngur um frið, útrétt hönd til hjálpar þeim veika, til hjálpar…

Villi verkamaður

Villi verkamaður Lag / texti: Ólafur Þórarinsson / Ómar Halldórsson Ég þykist heiðvirð sál með hjólbeinótt læri. Í gömlum gúmmískóm, með belti úr snæri. Þó að ég þræli alla mína ævi hef ég hvorki ofan í mig né á. Ég þræla og púla fyrir konu og krökkum. Í gegnum lífið ég hef barist í bökkum.…

Litli fuglinn

Litli fuglinn Lag / texti: Ólafur Þórarinsson / Jón Thoroddsen Það var eitt eyrarrós á eyðistað. Og lítill fugl að kvöldi kom og kyssti það. Hann elskaði svo undurheitt sitt eyrarblóm. Og veröldin var án þess öll svo auð og tóm. Að morgni eftir nepjunótt og nístingsél. Fram og aftur flögrar hann um frosinn mel.…

Tileinkun

Tileinkun Lag / texti: erlent lag / Gunnlaugur Sveinsson Ég man þig enn, ég man þig enn klessumálarinn minn, með litsterkju kringum augun og rauðan blett á kinn. Tónöldur skoluðu okkur saman á flæðisker, það var eitt af þessum kvöldum sem að kemur bara og fer. Við áttum saman öldudans í mannhafi eitt sinn, og…

Horfðu

Horfðu Lag og texti Björgvin Halldórsson Horfðu á lítið barn sem leikur sér, í einfaldleika sínum hreykir sér. Skalt þú minnast? Skalt þú gleyma? La-la-la-la-la-la-la Horfðu á tunglið, horfðu á stjörnurnar. Sjáðu himinhvolfið gleypa þig. Skalt þú eflast? Skalt þú hörfa? Þú hugsar um þitt draumaríki. Þú kallar en færð ekkert svar. Ég sé þig…

Vorar samt

Vorar samt Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Jón Magnússon Varpaðu frá þér vetrarkvíða. Vorsins finnst þér langt að bíða, en það kemur hægt og hægt. Storminn þunga hreggs og hríða hefur kannski bráðum lægt. Við því búinn vertu sjálfur: Vorið fer um lönd og álfur. En því miðar hægt og hægt. Við því búinn…

Rafvirkjavísur

Rafvirkjavísur Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson Á rafvirkjanna ævi geta ýmsir hlutir skeð, sem ekki þykir ástæða að flíka mikið með. Þó ætla ég að segja ykkur frá ævintýri því, sem einn á þeirra skúffu lenti nýskeð í. Í hans vinnustofu í vesturbænum hringdi fögur frú, og fagurri röddu kvakaði og bað…

Jólaklukkur

Jólaklukkur Lag / texti: erlent lag (Jingle bells) / Loftur Guðmundsson Þótt ei sjái sól sveipar jarðarból hug og hjarta manns, heilög birta um jól. Mjöllin heið og hrein, hylur laut og stein, á labbi má þar löngum sjá lítinn jólasvein. Klukknahreim, klukknahreim, hljóma fjöll og fell, klukknahreim, klukknahreim bera bláskyggð svell. Stjarnan mín, stjarnan…

Lestin brunar

Lestin brunar Lag / erlent lag [1] Gylfi Þ. Gíslason [2] Árni Johnsen [3] / Jón Helgason Lestin brunar hraðar, hraðar, húmið ljósrák sker, bráðum ert þú einhvers staðar óralangt frá mér. Út í heim þú ferð að finna frama nýjan þar, ég hverf inn til anna minna, allt er líkt og var. Þú átt…

Hvers vegna?

Hvers vegna? Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Stefán Jónsson Hvers vegna er hvert lítið barn svo lítið? Og lífið allt svo undarlegt og skrítið? Og allt svo ótryggt hér, að enginn sinnir mér. Þið fáið sjá hvað satt er. Ég vil að börnin fái að fæðast stærri, um fermingu, það gæti látið nærri, því…

Jón er kominn heim

Jón er kominn heim Lag / texti: erlent lag / Iðunn Steinsdóttir Ég er hýr og ég er rjóð, því Jón er kominn heim. Ég er glöð og ég er góð, Jón er kominn heim. Kvíði bæði og angist er allur vikinn burt frá mér því Jón er kominn heim. Loks í gær var drepið…

Þú ert minn súkkulaðiís

Þú ert minn súkkulaðiís Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson Þú ert minn súkkulaðiís, þú ert minn sælgætisgrís, þú ert sætabrauðs drengurinn minn. Þú ert minn súkkulaðiís, þú ert minn sælgætisgrís, því engan sætari og betri ég finn. Hann – var dál’till herramann, hún – var sæt og fín. Syng – þú…

Allt er breytt

Allt er breytt Lag / texti: erlent lag / Magnús Ingimarsson Fyrir allra augu fórstu burt, ég friðlaus hef mig spurt – og hvurt – af hverju það gerðist einmitt hér. Enginn efar að þú hefur brugðist mér. Allir vita nú að allt er breytt, allir vita að þú sveikst mig. Enginn veit hve ég…

Til æskustöðvanna

Til æskustöðvanna Lag og texti: Guðjón Matthíasson Ég man þig enn og minning þína geymi milda, bjarta æskubyggðin mín. Þó árin líði, þér ég aldrei gleymi, og nú ég sendi kveðju heim til þín. Því þar mín liggja ótal æskusporin hjá litla bænum barn er lék ég mér, en fegurst alltaf fannst mér þó á…

Lipurtá

Lipurtá Lag og texti Jenni Jóns Fríða litla lipurtá. Ljúf með augu fögur, djúp og blá. Að dans jenka er draumurinn, hún dansar fyrir hann afa sinn. Annað dansa ekki má, annað en jenka, ónei það er frá, allir klappa hó og hó og hæ, hlegið hátt og dansað dátt og nú er kátt í…

Halló mamma

Halló mamma Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson Halló pabbi, halló mamma! Ég er hér austur í sveit að djamma. Það er allt í lagi, ofsa gaman, ég er að hugsa um að stinga af frá öllu saman. Komdu austu, elsku pabbi, ég á nefnilega hérna í dálitlu kvabbi, því að ég get…

Anna María

Anna María Lag / texti: Hjörtur Guðbjartsson / Árni Reynisson Ást mína ég ætla að sanna, Anna María. Aðeins þig ég þrái, Anna María. Þig mig dreymir daga og nætur, drattast seint á fætur. Sæta Anna, Anna, Anna, Anna María. Ef þú velur einhvern annan, Anna María, mun ég höggva mann og annan, Anna María.…

Elskaðu mig

Elskaðu mig Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson Elskaðu mig – ég mun alltaf elska þig. Þú ert ást mín fyrsta og eina, svo ung og barnaleg, þá ást svo æskuhreina við eigum, þú og ég. Ó, farðu ekki frá mér, ég finna vil þig alltaf hjá mér. Elskaðu mig – ég mun…

Karlarnir heyrnarlausu

Karlarnir heyrnarlausu Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson Komdu blessaður, Kalli! Hvað segirðu, Palli? Ég sagði; komdu sæll! Hvað segirðu: Stæll? Ég sagði: Komdu sæll, Kalli! Hvað segirðu, Palli? Og þú ert skíthæll. Já – komdu sæll. Ég var að koma úr bíó. Hvað segirðu – Tríó? Nei – nei – nei nú…

Söngur villiandarinnar

Söngur villiandarinnar Lag / texti: erlent lag / Jakob Hafstein Í vor kom ég sunnan með sólskin í hjarta, hún seiddi mig dýrðin í landinu bjarta. Ó, íslenska byggð, þú átt ein mína tryggð. Ég byggði mér hreiður við bakkana lágu, og bjó þar með ungunum fallegu, smáu í friði og ást, sem aldregi brást.…

Ólafur sjómaður

Ólafur sjómaður Lag og texti Jenni Jóns Hann Ólafur sjómaður sagði það sínar ær og kýr, að segja fólkinu sögur, um sjómennsku ævintýr. Hann hafði á hafinu barist og hetjudáð sýnt og reynt. Og válegum brostum varist, og vegið að öldunni beint. Er hafaldan háa við himininn gnæfir, og hart er stormsamt og kalt, þá…

Afmælisbörn 24. október 2019

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Karl Ottó Runólfsson tónskáld hefði átt afmæli í dag. Karl fæddist aldamótaárið 1900, nam trompet- og píanóleik, auk þess ljúka námi í hljómsveitaútsetningum og tónsmíðum. Hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar Reykjavíkur og stýrði nokkrum lúðrasveitum og danshljómsveitum víða um land, hann sinnti ennfremur tónlistarkennslu en lék…

Afmælisbörn 23. október 2019

Tvö afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Skúli Sverrisson bassaleikari er fimmtíu og þriggja ára gamall í dag. Hann hefur starfað og verið með annan fótinn í Bandaríkjunum síðustu árin og gefið út fjöldann allan af sólóplötum frá árunum 1997 en á árum áður starfaði hann í hljómsveitum eins og Pax Vobis, Gömmum…

Afmælisbörn 22. október 2019

Þrír tónlistarmenn eru á afmælisbarnaskrá Glatkistunnar í dag: Steinn Kárason tónlistarmaður og umhverfishagfræðingur frá Sauðárkróki er sextíu og fimm ára á þessum degi. Steinn starfaði á árum áður með hljómsveitunum Djöflahersveitinni og Háspennu lífshættu í Skagafirði en gaf út sólóplötuna Steinn úr djúpinu fyrir fáeinum árum, hann hefur einnig gefið út smáskífu í samstarfi við…

Afmælisbörn 21. október 2019

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Karl Olgeir Olgeirsson hljómborðsleikari og lagahöfundur frá Akureyri er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Hann hefur starfað ýmist í hljóðverum sem upptökumaður eða hljóðfæraleikari en einnig með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina. Sem dæmi um sveitir sem hann hefur verið í má…

Afmælisbörn 20. október 2019

Afmælisbörn dagsins í dag eru fjögur: Þóra Einarsdóttir sópransöngkona er fjörutíu og átta ára gömul í dag. Þóra lærði píanóleik og söng hér heima en fór til Englands í framhaldsnám í söng, þar bjó hún um tíma sem og í Svíþjóð og Þýskalandi. Hún hefur sungið á fjölmörgum plötum og óperuhlutverk hennar skipta tugum en…

Afmælisbörn 19. október 2019

Fjögur afmælisbörn eru á skrá hjá Glatkistunni í dag: Guðmundur S. Steingrímsson (Papa Jazz) trommuleikari með meiru er níræður á þessum degi og á þessi stórmerki maður því stórafmæli dagsins. Guðmundur lék á sínum tíma með fjöldanum öllum af djass- og danshljómsveitum þess tíma og alltof langt mál yrði að telja þær allar upp en…

Afmælisbörn 18. október 2019

Í dag koma tvö tónlistartengd afmælisbörn við sögu Glatkistunnar: Magni Friðrik Gunnarsson gítarleikari frá Akureyri er fimmtíu og tveggja ára gamall í dag. Magni er kunnastur fyrir framlag sitt með Stuðkompaníinu sem sigraði Músíktilraunir 1987 en hefur svosem komið mun víðar við á sínum tónlistarferli, hann hefur leikið og sungið í sveitum eins og Foringjunum,…

Afmælisbörn 17. október 2019

Eitt tónlistartengt afmælisbarn er á listanum í dag: Söng- og fjölmiðlakonan Erla (Sigríður) Ragnarsdóttir Dúkkulísa er fimmtíu og tveggja ára gömul í dag. Erla var söngkona hljómsveitarinnar Dúkkulísanna frá Egilsstöðum sem sigruðu Músíktilraunir 1983 og gaf út í kjölfarið lög eins og Pamela, Svarthvíta hetjan mín og Skítt með það, sem nutu mikilla vinsælda. Erla…

Mjólkurstöðin [tónlistartengdur staður] (1945-53)

Mjólkurstöðin við Laugaveg var um skeið einn vinsælasti skemmtistaðurinn á höfuðborgarsvæðinu en Guðmundur Kristjánsson rak staðinn í umboði Mjólkursamsölunnar á efstu hæð hússins á árunum 1945 til 53, húsið var reist 1945. Fjöldi hljómsveita lék fyrir dansi í Mjólkurstöðinni og er KK-sextettinn líkast til þekktust sveita sem þar lék en hún lék þar nýstofnuð haustið…

Minningar [safnplöturöð] – Efni á plötum

Minningar – ýmsir Útgefandi: PS músík Útgáfunúmer: PS 91071 / PS 91072 Ár: 1991 1. Erna Gunnarsdóttir – Augun þín 2. Sigrún Hjálmtýsdóttir – Hvert örstutt spor 3. Páll Óskar Hjálmtýsson – Yndislegt líf 4. Ari Jónsson – Móðurminning 5. María Björk Sverrisdóttir – Ástarbréf 6. Sigrún Hjálmtýsdóttir – Aldrei einn á ferð 7. Erna Gunnarsdóttir, María Björk…

Minningar [safnplöturöð] (1991-2000)

Safnplötuserían Minningar naut nokkurra vinsælda á síðasta áratug síðustu aldar en þrjár plötur komu út í röðinni og höfðu að geyma þekkt lög í meðförum vinsælustu söngvara landsins s.s. Páls Óskars Hjálmtýssonar, Diddúar, Ernu Gunnarsdóttur, Guðrúnar Gunnarsdóttur og Bergþórs Pálssonar svo nokkur dæmi séu hér nefnd. Það voru þau María Björk Sverrisdóttir og Pétur Hjaltested…

Mínus [1] (1996)

Sumarið 1996 var starfandi hljómsveit í Stykkishólmi en hún hét Mínus og var skipuð meðlimum í yngri kantinum. Ekki finnast neinar upplýsingar um meðlimi sveitarinnar eða hljóðfæraskipan og starfstíma og er því hér með óskað eftir þeim.

Mín [2] (1988)

Hljómsveitin Mín spilaði í nokkur skipti á skemmtistaðnum Hollywood vorið 1988 en ekki liggur fyrir hversu lengi sveitin starfaði. Meðlimir hennar voru Guðlaugur Pálsson trommuleikari, Atli Viðar Jónsson bassaleikari og söngvari, Sigurður Hafsteinsson gítarleikari og söngvari og Pétur Hreinsson hljómborðsleikari.

Mín [1] (1973)

Hljómsveitin Mín starfaði árið 1973, lék þá á Hótel Borg en ekki finnast neinar haldbærar heimildir um þessa sveit, meðlima- eða hljóðfæraskipan hennar. Glatkistan óskar því eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.

Mínir menn (?)

Hljómborðsleikarinn Nikulás Róbertsson lék á einhverjum tímapunkti með hljómsveit sem bar heitið Mínir menn. Af nafngiftinni að dæma hefur þessi sveit verið starfandi á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. ekki á Vopnafirði þaðan sem Nikulás kemur upphaflega snemma á áttunda áratug síðustu aldar. Allar frekari upplýsingar um þessa sveit óskast sendar Glatkistunni með fyrirfram þökkum.