Dansband EB (1991-92)

Dansband EB (Danshljómsveit Einars Bárðarsonar) var ballhljómsveit kennd við Einar Bárðarson (síðar umboðs- og athafnamann), sem starfaði í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi veturinn 1991-92. Aðrir meðlimir sveitarinnar voru Heimir Eyvindarson hljómborðsleikari og Sævar Þór Helgason gítarleikari (sem áttu eftir að gera garðinn frægan með Á móti sól), bassaleikarinn Björn Sigurðsson (Karma, Rask o.fl.), og trommuleikarinn…

Dansband Eimskipa (1927-28)

Litlar upplýsingar finnast um Dansband Eimskipa en það mun hafa verið starfandi fyrir eða um 1930. Dansbandi Eimskipa mun hafa verið stjórnað af Karli O. Runólfssyni fiðlu- og trompetleikara en aðrir meðlimir sveitarinnar voru Auðbjörn Emilsson bassahornleikari, Björn Marinó Björnsson básúnuleikari, Eggert Jóhannesson trompetleikari, Aage Lorange píanóleikari og Björn Jónsson saxófónleikari. Þessi sveit mun hafa…

Dansbandið [1] (1981-)

Hljómsveitin Dansbandið (sú fyrsta með þessu nafni) á sér langa og viðburðaríka sögu, sem enn sér líklega ekki fyrir endann á. Dansbandið var stofnað í Hafnarfirði í upphafi ársins 1981, stofnmeðlimir voru líklegast þeir Sveinn Guðjónsson söngvari og hljómborðsleikari, Kristján Hermannsson trompetleikari og söngvari, Gunnar Ársælsson gítarleikari, Svavar Ellertsson trommuleikari og Ágúst Ragnarsson bassaleikari. Mannabreytingar…

Danshljómsveit Svavars Lárussonar (1957)

Danshljómsveit Svavars Lárussonar starfaði að minnsta kosti um nokkurra mánaða skeið sumarið 1957 á Norðfirði en hún var þá fastráðin í nýtt samkomuhús Eskfirðinga, Valhöll sem vígð var um vorið. Engar upplýsingar liggja fyrir um hverjir skipuðu sveitina auk Svavars en hann gæti sjálfur hafa leikið á gítar og jafnvel sungið, hann var þá þekktur…

Danshljómsveit Keflavíkur (1958-63)

Fáar og litlar heimildir er að finna um Danshljómsveit Keflavíkur (Hljómsveit Keflavíkur) sem starfaði á árunum í kringum 1960 og eitthvað fram á sjöunda áratuginn, líklega þar til bítlatónlistin skók Keflavík og heiminn allan reyndar. Sveitin starfaði undir stjórn Guðmundar H. Norðdahl frá 1958 og til 1963 að minnsta kosti. Þá voru í sveitinni auk…

Danshljómsveit Útvarpsins (1935-49)

Tvær hljómsveitir voru starfandi innan veggja Ríkisútvarpsins á upphafsárum þess, annars vegar var um að ræða sjálfa „Útvarpshljómsveitina“ sem síðar varð að Sinfóníuhljómsveit Íslands, hins vegar það hin eiginlega Danshljómsveit Útvarpsins. Danshljómsveit Útvarpsins var í raun hljómsveit sem Bjarni Böðvarsson hafði stofnað 1935 innan Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) til að leika í útvarpinu á hálfs…

Danshljómsveitin okkar (1990)

Hljómsveit sem starfaði undir nafninu Danshljómsveitin okkar lék á dansleikjum í Danshúsinu í Glæsibæ fyrri hluta árs 1990. Meðlimir sveitarinnar voru Carl Möller hljómborðsleikari, Mark E. Brink söngvari og bassaleikari, Sigurður Hafsteinsson gítarleikari og Ólafur Kolbeins trommuleikari. Söngvararnir Þorvaldur Halldórsson og Kristbjörg Löve sungu með sveitinni, sem var fremur skammlíf.

Danssveitin (1993-96)

Danssveitin lék á dansstöðum bæjarins um nokkurra ára skeið á tíunda áratugnum en sveitin var skipuð reynsluboltum úr danshljómsveitabransanum. Sveitin var oft auglýst undir nafninu Danssveitin og Eva Ásrún [Albertsdóttir] en hún var söngkona sveitarinnar. Aðrir meðlimir voru Bjarni Sveinbjörnsson bassaleikari, Kristján Óskarsson hljómborðsleikari, Sigurður V. Dagbjartsson söngvari og gítarleikari og Gunnar Jónsson trommuleikari. Danssveitin…

Das Kapital (1984-85)

Das Kapital var skammlíf sveit með Bubba Morthens í fararbroddi, á þeim tíma sem hann lifði hratt. Á þessum tíma hafði Bubbi verið í mikilli neyslu og var að brenna upp, hann hafði þá á fjögurra ára tímabili gefið út fimm sólóplötur, þrjár plötur með Utangarðsmönnum (auk eina litla) og þrjár plötur með Egó. Þegar…

Das Kapital – Efni á plötum

Das Kapital – Lili Marlene Útgefandi: Gramm / Spor Útgáfunúmer: Gramm 20 / GRCD20 Ár: 1984 / 1998 1. Launaþrællinn 2. Svartur gítar 3. Leyndarmál frægðarinnar 4. Giftu þig 19 5. 10.000 króna frétt 6. Lili Marlene 7. Blindsker 8. Snertu mig 9. Fallen Angels 10. Bönnum verkföll Flytjendur: Bubbi Morthens – söngur, gítar og munnharpa…

Dato Triffler (1980)

Dato Triffler var aukasjálf Jakobs Lárusar Sveinssonar tónlistarmanns (f. 1954) frá Víkingavatni í Suður-Þingeyjasýslu. Jakob birtist nokkrum sinnum á síðum dagblaðanna árið 1980 en hann hélt þá tónleika undir nafninu Dato Triffler, hann tjáði þá blaðamanni að hann hefði byrjað að semja tónlist 1974 með litlum árangri en þegar hann fékk styrk frá guði haustið…

Dauðarefsing (1970-71)

Hljómsveitin Dauðarefsing starfaði í Vestmannaeyjum og verður sjálfsagt aðallega minnst fyrir að Bjartmar Guðlaugsson var í henni en hann átti eftir að verða stórt nafn í íslensku tónlistarlífi um einum og hálfum áratug síðar. Þessi sveit lék rokk í þyngri kantinum. Dauðarefsing var stofnuð síðsumars 1970 í Eyjum, meðlimir hennar voru í byrjun auk Bjartmars…

Dauði (1992?)

Engar upplýsingar finnast um hljómsveitina Dauða en hún mun að öllum líkindum hafa starfað á Akureyri um eða eftir 1992, sveitin var stofnuð upp úr hljómsveitinni Exit sem starfaði nyrðra 1989-92. Allar upplýsingar eru því vel þegnar.

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895-1964)

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi í Eyjafirði er eitt af þjóðskáldum okkar Íslendinga. Þótt hann hafi ekki verið tónlistarmaður kemur hann á ýmsan hátt við íslenska tónlistarsögu. Hann samdi fjöldann allan af ljóðum sem lög hafa verið samin við, upplestur hans á eigin verkum komu út á hljómplötum á síðustu öld, auk þess sem leikrit hans,…

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi – Efni á plötum

Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi – Upplestur úr eigin verkum (Reading from his own works) [10“] Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: BLCP 3 Ár: 1958 1. Lofsöngur 2. Húsmóðir 3. Höfðingi smiðjunnar 4. Konan sem kyndir ofninn minn 5. Askurinn 6. Sálin hans Jóns míns Flytjendur: Davíð Stefánsson – upplestur Davíð Stefánsson  – Skáld frá Fagraskógi: Upplestur…

Dá (1983-86)

Hljómsveitin Dá starfaði í rúmlega tvö ár á höfuðborgarsvæðinu og vakti nokkra athygli fyrir frambærilega söngkonu og óvenjulega hljóðfæraskipan. Dá var stofnuð haustið 1983 og voru meðlimir í upphafi þeir Heimir Barðason bassaleikari og Helgi Pétursson hljómborðsleikari sem höfðu áður verið í Jonee Jonee, þeir fengu til liðs við sig fljótlega annan bassaleikara sem hét…

Dátar (1965-67 / 1973-74)

Dátar voru ein þeirra hljómsveita sem telja má til minnisvarða um íslenskt bítl, aðeins fáeinar aðrar sveitir eins og Hljómar og Flowers geta gert tilkall til hins sama. Dátar voru stofnaðir vorið 1965 og komu þeir fyrst fram í lok júní, gítarleikararnir Hilmar Kristjánsson og Rúnar Gunnarsson sem einnig söng, stofnuðu sveitina og fljótlega bættist…

Dátar – Efni á plötum

Dátar [ep] Útgefandi: SG hljómplötur Útgáfunúmer: SG 512 Ár: 1966 1. Leyndarmál 2. Alveg ær 3. Kling klang 4. Cadillac Flytjendur: Rúnar Gunnarsson – söngur og gítar Hilmar Kristjánsson – gítar Jón Pétur Jónsson – bassi Stefán Jóhannsson – trommur Þórir Baldursson – orgel og raddir Dátar [ep] Útgefandi: SG hljómplötur Útgáfunúmer: SG 520 Ár:…

Deleríum tremens (1985)

Hljómsveitin Deleríum tremens var skráð til keppni í hljómveitakeppni sem haldin var í Atlavík um verslunarmannahelgina 1985. Engar sögur fara af því hvort sveitin mætti til leiks, hvernig henni reiddi af eða hverjir skipuðu hana en allar upplýsingar um hana væru vel þegnar.

Deceived (1992)

Unglingahljómsveit að nafni Deceived var auglýst á tónleikum í Breiðholti vorið 1992. Engar upplýsingar liggja fyrir um hverjir skipuðu þessa sveit en aðrar sveitir á fyrrgreindum tónleikum voru í þyngri kantinum, enda var dauðarokk áberandi á þeim tíma. Allar upplýsingar um Deceived væru því vel þegnar.

Demant hf. [útgáfufyrirtæki / umboðsskrifstofa] (1975-76)

Útgáfufyrirtækið og umboðsskrifstofan Demant hf. starfaði um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Fyrirtækið varð ekki langlíft. Það voru þremenningarnir Jón Ólafsson (síðar athafnamaður, þarna aðeins átján ára gamall), Helgi Steingrímsson og Ingibergur Þorkelsson sem komu að stofnun Demants hf. í janúar 1975. Fyrirtækið lét fljótlega að sér kveða á útgáfusviðinu og innan fárra mánaða kom…

Deopoeh (1985)

Engar upplýsingar eða vísbendingar er að finna um hljómsveitina Deopoeh sem tók þátt í hljómsveitakeppni í Atlavík um verslunarmannahelgina 1985. Ekki er því ólíklegt að sveitin hafi starfað á austanverðu landinu en allar upplýsingar þar af lútandi eru vel þegnar.

Demo (1979-81)

Hljómsveitin Demo (Demó) var nokkuð áberandi á dansstöðum höfuðborgarsvæðisins um það leyti sem pönk- og nýbylgjuæðið reið yfir, sveitin var þó á allt annarri línu en hún lék danstónlist með fusion ívafi. Sveitin mun hafa verið stofnuð haustið 1979 en ekki liggur fyrir hverjir skipuðu hana við stofnun. Í ársbyrjun 1980 voru hins vegar Einar…

Depression (1967-68)

Hljómsveitin Depression lék um nokkurra mánaða skeið á árunum 1967 og 68 í samkomuhúsum á höfuðborgarsvæðinu. Meðlimir sveitarinnar voru Eyþór Stefánsson gítarleikari, Bjarni Ingólfsson bassaleikari, Guðmundur [?] trommuleikari, Sigurður Jónsson hljómborðsleikari og Albert Aðalsteinsson gítarleikari.

DES (1982-84)

Akureyska hljómsveitin DES (stundum nefnd Dez) starfaði um nokkurra ára skeið á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar. Sveitin sem skilgreindi sig sem nýbylgjusveit var stofnuð um vorið 1982 og voru meðlimir hennar í upphafi þeir Eiríkur Jóhannsson gítarleikari, Jónas Þór Guðmundsson bassaleikari og Gunnlaugur Stefánsson trommuleikari. Fjórði meðlimurinn, Orri Árnason söngvari bættist í hópinn…

Di di seven (1992)

Danssveitin Di di seven var aukasjálf Birgis Sigurðssonar sem átti síðar eftir að starfa einkum undir nafninu Bix (og reyndar fleiri nöfnum). Reyndar kom aðeins eitt lag út með Birgi undir þessu nafni en það var lagið Reality á safnplötunni Icerave (1992), það lag vakti nokkra athygli.

Diabolus in musica (1975-81)

Kammerpoppsveitin Diabolus in musica var í upphafi tilraunastarfsemi nokkurra reykvískra menntaskólanema. Sveitin gaf út tvær plötur með mismunandi liðsskipan, og ól af sér nokkra landsþekkta tónlistarmenn. Sveitin skipar sér í hóp með öðrum viðlíka hljómsveitum sem þá voru starfandi, sveitum eins og Þokkabót, Melchior og jafnvel Spilverki þjóðanna. Upphaf Diabolus in musica má rekja til…

Diabolus in musica – Efni á plötum

Diabolus in Musica – Hanastél… …á Jónsmessunótt Útgefandi: Steinar / Sena Útgáfunúmer: STLP 010 / STCD 010 Ár: 1976 / 2003 1. Andlát 2. 17°C 3. Rúmba í baði 4. Pétur Jónatansson 5. Templarasyrpan 6. Dinnerinn 7. Kaffilagið 8. Heima er best 9. Eftir nokkra dansa skimar Pétur Jónatansson yfir dansgólfið og kemur auga á Jófríði…

Didda Jóns (1935-2019)

Þuríður Jónsdóttir (iðulega auglýst undir nafninu Didda Jóns eða Didda Jónsdóttir) var söngkona sem kom fram á sjónarsviðið á sjötta áratug síðustu aldar, hún þótti ein allra efnilegasta dægurlagasöngkona sem þá starfaði og var aukinheldur meðal þeirra fyrstu hér á landi. Didda fæddist árið 1935 í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu en fluttist ung suður til Reykjavíkur,…

Digital (1985)

Hljómsveitin Digital var skammlíf og starfaði á Ísafirði sumarið 1985. Litlar upplýsingar er að finna um þessa sveit, aðeins er vitað um trommuleikarann, Jökul Úlfsson en hann hafði fáeinum árum áður leikið með Egó. Svo virðist sem saga Digital hafi verið öll um haustið 1985 en allar upplýsingar varðandi þessa sveit væru vel þegnar.

Dínamít (1975-76)

Dínamít var ein þeirra hljómsveita á áttunda áratug síðustu aldar sem stöldruðu stutt við ásamt því sem tíðar mannabreytingar settu svip sinn á starfsemina. Mikil gróska var í íslensku balltónlistarlífi á þeim tíma og tóku fjölmiðlar virkan þátt í að miðla fréttum um ósætti og ósamkomulag innan og milli hljómsveita svo ekki hjálpaði það til.…

The Dirty Dan project – Efni á plötum

Dirty Dan Project, The – The Dirty Dan Project [ep] Útgefandi: Gramm Útgáfunúmer: Gramm 2 Ár: 1981 1. Back stabbers 2. Drifter’s escape 3. Music concrete Flytjendur:  Danny Pollock – [?] Mike Pollock – [?]  Ásgeir Bragason – trommur

The Dirty Dan project (1981)

Dirty Dan project var í raun aldrei starfandi nema sem hljóðversverkefni bræðranna Dan og Mike Pollock og trommuleikarans Ásgeirs Bragasonar sem yfirleitt er kenndur við Purrk pillnikk. Tríóið starfaði í tvær nætur sumarið 1981 en um það leyti voru Utangarðsmenn að hætta störfum en þeir bræður starfræktu þá einnig hljómsveitina Bodies auk þess sem Mike…

Dixan (1980-83)

Danshljómsveitin Dixan starfaði á Akureyri að minnsta kosti um fjögurra ára skeið upp úr 1980. Sveitin lék einkum á árshátíðum, þorrablótum og þess konar skemmtunum norðanlands en ekki liggur fyrir hverjir skipuðu hana eða hversu lengi nákvæmlega hún starfaði. Dixan hafði mögulega að geyma meðlimi sem hétu Júlíus [?] og Birgir [?] en allar upplýsingar…

Dizzy mint family (1996)

Dizzy mint family virðist hafa verið skammlíf unglingahljómsveit í Hafnarfirði, starfandi 1996. Engar upplýsingar er að finna um sveitina aðrar en að trommuleikari hennar var Vignir Svavarsson og að hún lék á útitónleikum á Víðistaðatúni í Hafnarfirði vorið 1996. Allar nánari upplýsingar eru vel þegnar.

Díana Magnúsdóttir (1943-)

Díana (Bjarney) Magnúsdóttir söngkona (f. 1943) þótti ein allra efnilegasta dægurlagasöngkona okkar í kringum 1960 þegar henni skaut fram á sjónarsviðið en hún hvarf þaðan jafn snögglega fáeinum árum síðar. Díana sem var upphaflega úr Hveragerði hafði ung byrjað að syngja, hún söng til dæmis í Kór Hlíðardalsskóla í Ölfusi og var á sextánda ári…

Dísel Sæmi (1994)

Hljómsveitin Dísel Sæmi (Diesel Sæmi) var af höfuðborgarsvæðinu, keppti í Músíktilraunum vorið 1994, var að öllum líkindum skammlíf og verður varla minnst nema fyrir það eina að hafa innanborðs sjálfan Mugison. Dísel Sæmi sem lék sýrurokk komst ekki í úrslit Músíktilraunanna en meðlimir sveitarinnar voru sem fyrr segir Mugison (Örn Elías Guðmundsson) sem var söngvari…

Djasshljómsveit Hauks Ágústssonar (1984-86)

Djasshljómsveit Hauks Ágústssonar starfaði um skeið á Akureyri um miðjan níunda áratug síðustu aldar en um var að ræða djasshljómsveit sem upphaflega var sett saman 1984 og var starfrækt svo með hléum líklega til haustsins 1986 en þá lék sveitin víða um norðanvert landið. Um var að ræða tímabundið verkefni á vegum MENOR (Menningarsamtaka Norðlendinga…

Djúpárdrengir (um 1963-65)

Djúpárdrengir var heiti á söngkvartett sem mun hafa starfað við Menntaskólann á Akureyri á sjöunda áratug liðinnar aldar. Nafnið Djúpárdrengir var íslensk þýðing á nafni bandaríska söngkvartettsins Deep river boys sem starfaði í áratugi og kom tvívegis hingað til lands, 1959 og 63, og hefur án efa verið fyrirmynd norðlenska kvartettsins. Menntaskólakvartettinn mun hafa valið…

Djús (1981)

Hljómsveitin Djús var starfandi á höfuðborgarsvæðinu árið 1981 Meðlimir sveitarinnar voru Óskar Þorvaldsson trommuleikari, Ólafur Elíasson [?], Ólafur Steinarsson [?] og Styrmir Sigurðsson [?]

Djöflahersveitin (um 1970)

Djöflahersveitin var hljómsveit starfrækt á Sauðárkróki 1970-71 en hún spilaði hrátt rokk sem síðar hefði líklega verið skilgreint sem pönk. Meðlimir Djöflahersveitarinnar voru þeir Steinn Kárason söngvari og gítarleikari, Beggi [?] bassaleikari (frá Hofsósi), Hafsteinn Sæmundsson trommuleikari og Björgvin Guðmundsson sem einnig var trommuleikari og hefur líklega þá tekið við af Hafsteini, auk þess var…

Doddi & Eyrnastór (1991)

Hljómsveitin Doddi & Eyrnastór var skipuð stórum nöfnum úr íslensku tónlistarlífi og starfaði 1991. Meðlimir sveitarinnar voru Þórður Bogason söngvari (Foringjarnir, Rikshaw o.fl.), Sigurður Reynisson trommuleikari (Egó, Drýsill o.fl.), Friðrik Karlsson gítarleikari (Mezzoforte o.fl.), Birgir Bragason bassaleikari (Sálin hans Jóns míns, Milljónamæringarnir o.fl.) og Björn Thoroddsen gítarleikari (Guitar Islancio o.fl.) Þeir Doddi & Eyrnastór virðast…

Dog (1996)

Allar upplýsingar um hljómsveitina Dog sem starfaði árið 1996 eru vel þegnar, en sveitin spilaði á balli á Akranesi það ár. Sveitin starfaði hugsanlega í því bæjarfélagi.

Don Arden (1926-2007)

Don Arden var hvorki íslenskur né bjó hérlendis en plata með honum kom út árið 1954 á vegum Tóniku þar sem hann söng við undirleik strengjasveitar undir stjórn Ólafs Gauks, og því er sjálfsagt og eðlilegt að umfjöllun birtist um hann hér. Don Arden (fæddur 1926) var breskur eftirhermusöngvari sem sérhæfði sig í að herma…

Dolfall (1978)

Hljómsveitin Dolfall starfaði á Seyðisfirði sumarið 1978, hugsanlega einnig 1977. Meðlimir sveitarinnar voru Tommi [?] gítarleikari, Scotti [?] bassaleikari, Siggi [?] hljómborðsleikari, Halli [?] trommuleikari, Auda [?] söngvari og Inga [?] söngvari. Ef einhver hefur nánari upplýsingar um nöfn meðlima Dolfalls má hinn sami gjarnan hafa samband, einnig varðandi líftíma sveitarinnar og annað sem skiptir…

Don Arden – Efni á plötum

Don Arden [ep] Útgefandi: Músikbúðin Tónika Útgáfunúmer: P 107 Ár: 1954 1. Eftirhermur 2. Sleeping Beauty Flytjendur: Don Arden – söngur rhythmakvartett leikur – [engar upplýsingar um flytjendur] strengjasveit leikur undir stjórn Ólafs Gauks – [engar upplýsingar um flytjendur]

Donde’s band (1929-40)

Donde‘s band (Eli Donde orkester) var reyndar ekki íslensk heldur dönsk djasshljómsveit danska fiðluleikarans Eli Donde (1911-40) sem var ráðin sem hljómsveit hússins á Hótel Borg þegar það opnaði 1930. Sveitin spilaði um sex mánaða skeið um veturinn 1930-31 á Borginni en ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um það hverjir skipuðu sveitina auk hljómsveitarstjórans en…

Doria (1996)

Sextettinn Doria starfaði um tíma á höfuborgarsvæðinu 1996. Sveitin var stofnuð upp úr Langbrók sem hafði starfað nokkru áður en úr þeirri sveit komu Baldur Sigurðarson hljómborðsleikari, Aðalsteinn Bjarnþórsson gítarleikari, Pétur Jensen bassaleikari og Andri Hrannar Einarsson trommuleikari, söngkonurnar Regína Ósk Óskarsdóttir og Bryndís Sunna Valdimarsdóttir (sem voru þá einnig í Söngsystrum) voru fimmti og…

Dormus (1999)

Hljómsveitin Dormus starfaði á höfuðborgarsvæðinu 1999 og keppti þá um vorið í Músíktilraunum Tónabæjar. Meðlimir Dormus í Músíktilraunum voru Guðmundur Davíð Hermannsson söngvari og gítarleikari, Daníel Freyr Kristínarson bassaleikari og Ottó Reimarsson trommuleikari. Þríeykið komst ekki áfram í tilraununum og sást ekki meir að þeim loknum.