Danshljómsveit Svavars Lárussonar starfaði að minnsta kosti um nokkurra mánaða skeið sumarið 1957 á Norðfirði en hún var þá fastráðin í nýtt samkomuhús Eskfirðinga, Valhöll sem vígð var um vorið.
Engar upplýsingar liggja fyrir um hverjir skipuðu sveitina auk Svavars en hann gæti sjálfur hafa leikið á gítar og jafnvel sungið, hann var þá þekktur dægurlagasöngvari þótt hann hefði að mestu lagt sönginn á hilluna þegar hér var komið sögu.
Danshljómsveit Svavars Lárusson var fimm manna sveit.