Dóminik (1976-79)

Hljómsveitin Dóminik (Dominik) lék víða á dansstöðum höfuðborgarsvæðisins á sínum tíma og var höfuðvígi þeirra í Hafnarfirðinum, svo ekki er ólíklegt að sveitin hafi verið starfrækt þar í bæ. Elstu heimildir um sveitina er að finna frá 1976 og virðist hún hafa starfað þar til í byrjun árs 1979 að minnsta kosti. Mannabreytingar voru einhverjar…

Dónar svo bláir (1989-90)

Dónar svo bláir var ein hljómsveit af mörgum sem pönksveitin Fræbbblarnir ól af sér, flestar innihéldu þær Valgarð Guðjónsson söngvara og Stefán Guðjónsson trommuleikara. Meðlimir Dóna svo blárra voru auk Valgarðs og Stefáns, gítarleikarararnir Arnór Snorrason og Kristinn Steingrímsson en annar þeirra hlýtur þó að hafa leikið á bassa í þessari sveit. Sveitin kom ekki…

Dóra Sigurðsson (1892-1985)

Dóru Sigurðsson sópransöngkonu verður helst minnst fyrir að vera fyrsta söngkonan sem söng á plötu hérlendis. Dóra (f. Dora Köcher) var reyndar þýsk, fædd 1892 (sumar heimildir segja 1893) og nam söng í Dresden þar sem hún kynntist verðandi eiginmanni sínum Haraldi Sigurðssyni píanóleikara (1892-1985) frá Kaldaðarnesi í Flóa, sem þar nam einnig. Hann varð…

Dóra Sigurðsson – Efni á plötum

Dóra Sigurðsson [78 sn.] Útgefandi: Hljóðfærahús Reykjavíkur Útgáfunúmer: Polyphone XS 44190 Ár: 1926 1. Draumalandið 2. Vetur (Hvar eru fuglar) Flytjendur: Dóra Sigurðsson – söngur Haraldur Sigurðsson – píanó     Dóra Sigurðsson [78 sn.] Útgefandi: Hljóðfærahús Reykjavíkur Útgáfunúmer: Polyphone XS 44224 Ár: 1927 1. Du bist wie eine Blume 2. Ein sit ég úti…

Dr. Sáli (1993-95)

Ballhljómsveitin Dr. Sáli starfaði framan af í Vestmannaeyjum en síðar á höfuðborgarsvæðinu eftir því sem heimildir herma. Ekki er ljóst hverjir skipuðu Dr. Sála að öllu leyti en 1993 mun hún hafa verið níu manna sveit, þá voru meðlimir hennar Gunnlaug Rósalind Sigurðardóttir, Guðlaugur Ólafsson, Óskar Sigurðsson, Pétur Erlendsson [gítarleikari?], Viktor Ragnarsson bassaleikari, Hersir Sigurgeirsson,…

Drangey [tónlistartengdur staður] (1945-65)

Verslunin Drangey sem margir þekkja í Smáralindinni á sér langa og merka sögu og er hluti þeirrar sögu (1945-65) tengdur íslenskri tónlistarsögu. Drangey var upphaflega matvöruverslun á Grettisgötu 1 en þar opnaði hún 1934. Árið 1936 keypti María Samúelsdóttir Ammendrup verslunina og fimm árum síðar flutti hún á Laugaveg þar sem hún var staðsett næstu…

Draumasveitin (1991-92)

Hljómsveitin Draumasveitin var tímabundið verkefni í kringum útgáfu fyrstu sólóplötu Egils Ólafssonar, Tifa tifa, sem kom út fyrir jólin 1991. Þeir Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Haraldur Þorsteinsson bassaleikari höfðu leikið í upptökunum fyrir plötuna og voru tilbúnir í verkefnið en auk þeirra bættust í hópinn Þorsteinn Magnússon og Björgvin Gíslason gítarleikarar og Berglind Björk Jónasdóttir…

Draumsýn [1] (1977)

Afar litlar upplýsingar liggja fyrir um ballhljómsveitina Draumsýn sem starfaði að minnsta kosti 1977. Michael Clausen gítarleikari [?] og Erling Kristmundsson trommuleikari [?] voru þó meðal sveitarliða en þeir störfuðu síðar saman í hljómsveitinni Basil fursta. Lesendur mega fylla inn í eyðurnar um Draumsýn ef þeir hafa frekari upplýsingar um hana.

Draumsýn [2] (1977-79)

Hljómsveitin Draumsýn starfaði í Réttarholtsskóla í tvo vetur, að öllum líkindum 1977-79, og innihélt tvo fræga einstaklinga. Meðlimir Draumsýnar voru Björk Guðmundsdóttir söngkona og þverflautuleikari, Gunnlaugur Helgason trommuleikari og síðar útvarpsmaður, Einar Sigurðsson bassaleikari og Eyjólfur Alfreðsson síðar fiðluleikari en lék líklega á gítar í þessari sveit. Þótt Draumsýn yrði ekki þekkt utan skólans náði…

Drákon (1997-)

Keflvíska hljómsveitin Drákon kom við sögu í tveimur hljómsveitakeppnum árið 1997 en síðan hefur farið lítið fyrir henni. Sveitin sem spilaði eins konar þungt rokk, vakti fyrst athygli vorið 1997 í Músíktilraunum Tónabæjar þar sem hún komst alla leið í úrslit. Meðlimir sveitarinnar voru þá Eyjólfur Kristinsson söngvari, Jóhann Davíð Albertsson trommuleikari, Arnar Már Frímannsson…

Drekar [1] (1964/69)

Erfitt er að henda reiður á hvenær hljómsveitin Drekar störfuðu nákvæmlega en elstu heimildir um þá sveit er að finna frá 1964. Síðan hættu Drekar störfum en birtust aftur um fimm árum síðar, 1969. Allar líkur eru á að um sömu sveit sé að ræða. Nokkuð er á huldu hverjir Drekar voru en þó liggur…

Drekar [2] (1975-87)

Drekar var hljómsveit sem sérhæfði sig í gömlu dönsunum og lék aðallega á dansstöðum borgarinnar um tólf ára skeið á árunum 1975-87. Engar upplýsingar finnast um meðlimi Dreka eða hvort einhver tengsl séu á milli sveitanna tveggja sem báru þetta nafn. Þó liggur fyrir að Mattý Jóhanns (Matthildur Jóhannsdóttir) söng með sveitinni og Hjördís Geirs…

Drekkum það dry (1987)

Hljómsveitin Drekkum það dry starfaði á Akureyri 1987. Meðlimir sveitarinnar voru Stefán Brynjarsson söngvari, Jón Árnason gítarleikari, Þorvaldur Egilsson bassaleikari og Axel (Flex) Árnason trommuleikari. Allar nánari upplýsingar vantar en hugsanlega var þessi sveit enn starfandi 1989.

Drengjakór Fríkirkjunnar (1951-53)

Drengjakór Fríkirkjusafnaðarins (Drengjakór Fríkirkjunnar) var starfræktur tvo vetur á árunum 1951-53 en undirbúningur fyrir stofnun hans hófst 1950. Guðmunda Elíasdóttir stýrði kórnum sem kom í fyrsta skipti fram á sumardaginn fyrsta vorið 1951, og í nokkur skipti eftir það. Andrés Indriðason var líkast til eini þjóðþekkti Íslendingurinn sem var í þessum drengjakór.

Drengjakór Reykjavíkur [1] (1935-39)

Drengjakór Reykjavíkur (hinn fyrri) var einn fyrsti drengjakór sem starfaði hérlendis, líklega sá fyrsti fyrir utan drengjakórinn Vonina sem starfaði um aldamótin 1900. Jón Ísleifsson söngkennari við Miðbæjarskólann hafði haustið 1935 æft saman nokkra árganga drengja á aldrinum 11-15 ára sem sungu m.a. við guðsþjónustur, í janúar 1936 var kórinn hins vegar formlega stofnaður og…

Drengjakórinn (1990)

Drengjakórinn var að öllum líkindum skammlíf hljómsveit starfandi 1990. Um meðlimi hennar er ekki vitað annað en að Bergsteinn Björgúlfsson var trommuleikari hennar.

Drengjakór Sjónvarpsins (1969-71)

Drengjakór Sjónvarpsins var stofnaður haustið 1969 af Rut L. Magnússon sem einnig stjórnaði honum en kórnum var ætlað að starfa til frambúðar. Svo fór að kórinn starfaði aðeins í um tvö ár. Kórinn kom fram í nokkrum skemmtiþáttum á vegum Sjónvarpsins sem þá var tiltölulega nýstofnað. Nokkrir síðar þjóðþekktir tónslistarmenn sungu með þessum kór, þeirra…

Drengjalúðrasveit Barnaskólans á Akranesi (1959-61)

Litlar upplýsingar er að finna um lúðrasveit drengja sem starfandi var á Akranesi um 1960 en þó liggur fyrir að hún var starfrækt og 1959 og 1961, 1974 er talað um skólahljómsveit Akraness en líklegt er að hún hafi verið stofnuð upp úr þessari sveit. Ekki liggja heldur fyrir upplýsingar um hver stýrði Drengjalúðrasveit Barnaskólans…

Drengjalúðrasveit Barnaskólans á Akureyri (1954-75)

Drengjalúðrasveit Barnaskólans á Akureyri (Drengjalúðrasveit Akureyrar) var stofnuð haustið 1954 en fyrr það sama ár hafði Barnakór Akureyrar farið í söngferðalag til Noregs þar sem víða var tekið á móti þeim með lúðrablæstri drengjalúðrasveita, í kjölfarið kviknaði hugmyndin um þessa sveit og kom Akureyrarbær að verkefninu með því að leggja til húsnæði og greiða laun…

Drengjalúðrasveit Hafnarfjarðar (1958-70)

Lúðrasveit drengja var starfrækt í Hafnarfirði á sjötta áratug síðustu aldar. Páll Kr. Pálsson skólastjóri tónlistarskólans í Hafnarfirði mun hafa haft frumkvæði og komið að stofnun sveitarinnar 1958 og fékk hann Þjóðverjann Renald Brauner til að stjórna henni. Þessi sveit gæti hafa starfað til ársins 1970 en ekki er ljóst hvort Brauner stýrði henni alla…

Drengjalúðrasveit Keflavíkur (1961-71)

Drengjalúðrasveit Keflavíkur var ein öflugasta lúðrasveit drengja sem hér starfaði en eins og flestir vita var tónlistarlíf í Keflavík með því blómlegasta hérlendis á sjöunda áratugnum, sveitarfélagið kom eitthvað að fjármögnun sveitarinnar. Lúðrasveitin var stofnuð vorið 1961 og var Herbert H. Ágústsson stjórnandi hennar frá upphafi en Gunnar Egilson og Jósef Magnússon voru einnig kennarar…

Drengjalúðrasveit Kópavogs (1969-71)

Fjölmiðlar í kringum 1970 minnast lítillega á lúðrasveit drengja sem starfaði í Kópavogi á þeim árum. Ekki er ljóst hvort um er að ræða sömu sveit og Björn Guðjónsson stofnaði og stjórnaði undir nafninu Skólahljómsveit Kópavogs eða hvort um var að ræða aðra sveit. Lesendur mega gjarnan upplýsa Glatkistuna um það.

Drengjalúðrasveit Ólafsfjarðar (1971)

Litlar upplýsingar finnast um lúðrasveit drengja sem starfaði norður á Ólafsfirði 1971 en þó er vitað að Magnús Magnússon var stjórnandi hennar það ár. Allar upplýsingar um hversu lengi sveitin starfaði og almennt um tilurð hennar óskast.

Drengjalúðrasveit Stykkishólms (1965-66)

Í fjölmiðlum um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar er lítilræði að finna um Drengjalúðrasveit Stykkishólms. Upplýsingar um þessa sveit er af skornum skammti en ekki er ólíklegt að þessi sveit hafi heyrt undir Tónlistarskóla Stykkishólms sem stofnaður var 1964, lúðrasveit hafði starfað í bænum síðan 1944.

Drengjalúðrasveitir Vesturbæjar og Austurbæjar (1954-76)

Drengjalúðrasveit Vesturbæjar og Austurbæjar var, eins og auðvelt er að giska á, tvær lúðrasveitir en þær störfuðu saman og í sitt hvoru lagi, Vesturbæjarmegin undir stjórn Páls Pampichler Pálssonar en eystra undir stjórn Karls O. Runólfssonar. Þær gengu reyndar undir ýmsum öðrum nöfnum, voru kenndar við stjórnendur sína eða jafnvel við höfuðborgina, einnig undir nafninu…

Drengjalúðrasveit Mosfellssveitar (1963-76)

Drengjalúðrasveit Mosfellssveitar starfaði um árabil á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar þar til hún varð að Skólahljómsveit Mosfellssveitar. Það var Birgir D. Sveinsson sem stofnaði lúðrasveitinni og stýrði henni þar til yfir lauk, hún var að minnsta kosti í upphafi starfandi í barnaskólanum og gekk einnig undir nafninu Drengjalúðrasveit Barnaskóla Mosfellshrepps. Nafni sveitarinnar var…

Drift (1976)

Hljómsveitin Drift var undanfari funksveitarinnar Cirkus og starfaði einungis í fáeina mánuði vorið 1976 undir því nafni. Meðlimir sveitarinnar voru Sigurður Ragnar Lúðvíksson söngvari, Davíð Karlsson trommuleikari, Helgi Magnússon hljómborðsleikari, Þorvarður Hjálmarsson bassaleikari og Örn Hjálmarsson gítarleikari. Drift breytti nafni sínu í Cirkus um sumarið og mannaskipan hennar átti eitthvað eftir að breytast í kjölfarið.

Dritvík (1991-92)

Kvennapönktríóið Dritvík vakti nokkra athygli þann tíma sem hún starfaði en afurðir þess komu út á tveimur safnsnældum 1991. Dritvík var að líkindum stofnuð haustið 1990 en hún kom fram opinberlega í desember það ár. Meðlimir sveitarinnar voru Steinunn H. Blöndal bassaleikari, Oddný Eir Ævarsdóttir söngkona og Heiða Jóhannesdóttir gítarleikari (síðar kvikmyndagagnrýnandi á Morgunblaðinu). Líklega…

DRON [1] (1969)

Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis (hin fyrri) eða bara DRON var í raun hljómsveitin Pónik og Einar sem gekk undir þessu nafni um tíma árið 1969. Ekki liggur fyrir hverjir nákvæmlega voru í sveitinni á þessum tímapunkti en þeir voru fjórir talsins ef marka má myndina sem fylgir.

Drop (1993)

Hljómsveitin Drop virðist hafa verið skammlíf rokksveit sem starfaði árið 1993 og lék á nokkrum tónleikum þá um sumarið. Upplýsingar eru mjög af skornum skammti um Drop.

Droplaug (1973)

Danshljómsveitin Droplaug var skammlíf sveit starfandi 1973. Meðlimir Droplaugar voru Sigurður Sigurðsson söngvari, Ingvar Árilíusson bassaleikari, Ólafur Torfason hljómborðsleikari, Jónatan Karlsson trommuleikari og Torfi Ólafsson gítarleikari. Sveitin starfaði aðeins fáeina mánuði frá því snemma um vorið og eitthvað fram á sumarið 1973 áður en meðlimir hennar héldu í aðrar sveitir.

Drome (1994)

Tríóið Drome (stundum ritað Dróm) starfaði haustið 1994 en fljótlega á nýju ári (1995) hafði hún tekið upp nafnið Silverdrome, enn síðar hét hún Stjörnukisi og sigraði Músíktilraunir Tónabæjar 1996. Fjölmargir komu við sögu sveitarinnar undir nöfnunum þremur en ekki liggur fyrir hverjir þrír skipuðu hana í upphafi þegar hún gekk undir nafninu Drome, utan…

Drulla [1] (1991)

Pönksveitinni Drullu var aldrei hugað langt líf enda hliðarspor og einkaflipp nokkurra tónlistarmanna úr rokk- og pönkgeiranum. Meðlimir Drullu voru Ham-liðarnir Óttarr Proppé og Björn Blöndal, Ari Eldon og Örn Arnarson. Óttarr var söngvari sveitarinnar og gekk þarna undir nafninu Olli orgari en ekki er ljóst á hvaða hljóðfæri hinir þrír skiptu sér, þeir Alí…

Drýsill (1983-86)

Þungarokkssveitin Drýsill starfaði um þriggja ára skeið um miðjan níunda áratug liðinnar aldar og gaf út eina plötu. Stofnmeðlimir Drýsils voru þeir Eiríkur Hauksson söngvari og gítarleikari, Sigurður Reynisson trommuleikari, Jón Ólafsson bassaleikari og Einar Jónsson gítarleikari en sveitin var stofnuð um haustið 1983. Reyndar hafði Eiríkur, sem hafði frumkvæðið að stofnun sveitarinnar, fyrst prófað…

Drýsill – Efni á plötum

Drýsill – Welcome to the show Útgefandi: Drýsill Útgáfunúmer: Drýsill 001 Ár: 1985 1. Anthem for the insane 2. Left-right ( the right of dreams) 3. Don’t shoot me down 4. We’re coming to rock you 5. Welcome to the show 6. Play it loud 7. Little star (klassisk romance) 8. Fiesta for friends Flytjendur:…

Durex [2] (1995)

Hljómsveit með þessu nafni var starfandi 1995 á Suðurnesjunum. Margt er á huldu varðandi þessa sveit en hún mun hafa skartað söngkonu. Allar nánari upplýsingar eru vel þegnar.

Durex colour (1984-86)

Hljómsveitin Durex colour starfaði á Árskógsströnd á árunum 1984 til 86. Meðlimir sveitarinnar voru ungir að árum en þeir voru Hilmir Svavarsson trommuleikari, Steingrímur Karlsson hljómborðsleikari, Frímann Rafnsson gítarleikari og Halldór Halldórsson bassaleikari.

Dúmbó og steinarnir (1989)

Sumarið 1989 tóku fimm unglingspiltar þátt í söngvarakeppni sem haldin var um verslunarmannahelgina í Galtalækjarskógi, undir nafninu Dúmbó og steinarnir. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um þennan söngkvintett.

Duttlungar Orra eimsvala (1993)

Hljómsveitin Duttlungar Orra eimsvala mun hafa verið ein þeirra fjölmargra hljómsveita sem lék á óháðu tónlistarhátíðinni Óléttu ´93 sumarið 1993. Gallinn er sá að engar frekari upplýsingar finnast um þessa sveit og væru þær því vel þegnar.

Dúmbó sextett – Efni á plötum

Dúmbó og Steini [ep] Útgefandi: Jón Lýðsson U.F. útgáfan Útgáfunúmer: STEF 002 Ár: 1968 1. Ég sendi henni blikk 2. Angelía 3. Hringferðin 4. Skammdegi Flytjendur: [engar upplýsingar um flytjendur]   Dúmbó og Steini – Dúmbó og Steini Útgefandi: Steinar STLP 018, 1977 1. Hljómsveitin 2. Danslag 3. Frækorn og flugur 4. Angelía 5. Kvennagull…

Dúndur (1986-87)

Hljómsveitin Dúndur (oft einnig nefnd Dúndrið m. gr.) var fremur skammlíf sveit úr ranni Péturs Kristjánssonar en hún starfaði í rúmlega ár um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Hugmyndin var að þetta yrði eins konar útgöngusveit Péturs út úr poppinu en hann hafði á þessum tímapunkti stofnað fjölskyldu og ætlaði að helga sér henni. Þeir…

Dúmbó sextett (1960-69 / 1977-78)

Saga hljómsveitarinnar Dúmbó er bæði margslungin og flókin, spannar langan tíma og inniheldur fjölmargar mannabreytingar – svo mjög að ekki er víst að þessi umfjöllun nái utan um þær allar. Sögu sveitarinnar er reyndar líklega enn ekki lokið því hún kemur reglulega saman og leikur opinberlega. Hljómsveitin Dúmbó (Dumbo/Dumbó) var stofnuð í Gagnfræðaskóla Akraness vorið…

Dýpt (1969-71)

Litlar upplýsingar er að hafa um hljómsveitina Dýpt sem samkvæmt heimildum starfaði á árunum 1969-71, ekkert er þó að finna um sveitina í dagblöðum þess tíma utan ársins 1971. Dýpt var ein þeirra hljómsveita sem spilaði á Saltstokk ´71 hátíðinni. Eftir myndum að dæma var fyrst um fimm manna sveit að ræða, en síðar sex…

Dýragarðsbörnin (1995)

Hljómsveitin Dýragarðsbörnin mun hafa verið starfandi 1995. Litlar upplýsingar finnast um þessa sveit en Birgir Baldursson mun hafa verið trommuleikari hennar. Dýragarðsbörnin gæti á einhverjum tímapunkti hafa verið húshljómsveit á skemmtistaðnum Óðali.

Dýrið gengur laust (1989-91)

Dýrið gengur laust er sú íslenska hljómsveit sem hvað lengst hefur farið yfir strikið hvað textagerð varðar, og verður hennar e.t.v. fyrst og fremst minnst fyrir það – jafnvel eingöngu. Sveitin var líklega stofnuð í upphafi árs 1989 fremur en í lok ársins 1988, upp úr leifum hljómsveitanna Tregablandinni lífsgleði og Sogblettum. Bjarni „móhíkani“ Þórðarson…

Dýrlingarnir [1] (1967-68)

Hljómsveitin Dýrlingarnir (Saints) var ein sveita sem starfaði í nýstofnuðum Menntaskólanum við Hamrahlið á sjöunda áratug síðustu aldar og gekk upphaflega undir nafninu Tacton, síðan Bláa bandið, þá Dýrlingarnir og að lokum Tatarar, á þeirri leið urðu ýmsar mannabreytingar. Svo virðist sem sveitin hafi hlotið nafnið Dýrlingarnir vorið 1967, þá voru í sveitinni Stefán Eggertsson…