Popplag í G-dúr
(Lag / texti: Valgeir Guðjónsson)
Ég er staddur á algjörum bömmer,
sé ekki‘ úr augunum út,
allt er í steik þegar þú ert ekki með mér,
hleypur í kekki og hnút.
Og svo þegar þú birtist fer sólin að skína,
smáfuglar kvaka við raust,
í brjálæðis hrifningu býð ég þér Tópas
og berjasaft skilyrðislaust.
Við syngjum saman popplag í G-dúr,
við syngjum popplag í G,
við syngjum popplag í G-dúr,
það er engin leið að hætta, það er engin leið að hætta,
það er engin leið að hætta‘ að syngja svona
popplag í G-dúr, popplag í G.
Við förum á bíó, við förum á kostum
og förum á puttanum rúnt,
brauðmolum hendum í hausinn á öndum
sem hjálmlausum fellur það þungt.
Það er engin leið að hætta, það er engin leið að hætta,
það er engin leið að hætta‘ að syngja svona
popplag í G-dúr, popplag í G.
Sóló
En af hverju þarftu svo alltaf að hverfa
augsjónum mínum á burt,
svo beygður af harmi ég breytist að nýju
í bölvaðan dóna og durt?
Og ég er hér staddur á algjörum bömmer,
sé ekki‘ úr augunum út,
allt fer í steik þegar þú ert ekki með mér,
hleypur í kekki og hnút.
Við syngjum saman popplag í G-dúr,
við syngjum popplag í G,
við syngjum popplag í G-dúr,
það er engin leið að hætta, það er engin leið að hætta,
það er engin leið að hætta‘ að syngja svona
popplag í G-dúr, popplag í G.
Popplag í G# dúr, popplag í G#-dúr,
popplag í G#, popplag í G#, popplag í G#,
það er engin leið að hætta‘ að syngja svona
popplag í A-dúr, popplag í A,
það er engin leið að hætta‘ að syngja svona
popplag í A.
Það er engin leið að hætta,
það er engin leið að hætta,
það er engin leið að hætta,
það er engin leið að hætta…
[m.a. á plötunni Stuðmenn – Á gæsaveiðum]














































