Söngur villiandarinnar

Söngur villiandarinnar
Lag / texti: erlent lag / Jakob Hafstein

Í vor kom ég sunnan með sólskin í hjarta,
hún seiddi mig dýrðin í landinu bjarta.
Ó, íslenska byggð,
þú átt ein mína tryggð.

Ég byggði mér hreiður við bakkana lágu,
og bjó þar með ungunum fallegu, smáu
í friði og ást,
sem aldregi brást.

Og bóndinn minn prúður á bakkanum undi,
hann brosti við ungunum léttum á sundi.
Þeir léku sér dátt
og þeir döfnuðu brátt.

En dag nokkurn glumdi við gjallandi seiður,
það glampaði eldur, ég flúði mitt hreiður,
og bóndi minn dó,
það var brostin mín ró.

Og annar minn vængur var brotinn, og blóðið
með brennandi sársauka litaði flóðið,
ég hrópaði hátt
út í heiðloftið blátt.

“Ó – flýið þið, börn mín til framandi landa,
með fögnuði leitið þið öruggra stranda.”
Svo hvarf hún mér sýn
ljúfust hamingjan mín.

Við íslensku vötnin er fegurð og friður,
og fagnandi ríkir þar vornætur kliður,
ef gefið ei grið,
öllum fuglunum frið,
ef gefið þið grið,
öllum fuglunum frið.

[m.a. á plötunni Svona var það 1954 – ýmsir]