Þegar þú blikkar

Þegar þú blikkar
(Lag / texti: Herra Hnetusmjör [Árni Páll Árnason]

Þá er það Þorláksmessu nótt,
ég stari á stjörnubjartan himin.
Þú horfir á mig og hefur hljótt,
við finnum grenitrjáa ilminn.
Þurfum engan mistiltein,
við færum okkur nær,
upplifum aðfangadag.
Renni‘ í hlað á ný.

Þegar þú blikkar
og gefur mér gjöf sem
ég mun ekki skila, ó nei, ó nei.
Og ég vil það,
gef þér gjöf með engum skilamiða.

Þá er það aðfangadagskvöld,
teygjum okkur í myndaalbúmin.
Við flettum í gegnum árin öll,
augun þín segja mér enn hvað þú vilt.
Þurfum engan mistiltein,
við færum okkur nær,
upplifum jóladag.
Renni í hlað á ný.

Þegar þú blikkar
og gefur mér gjöf sem
ég mun ekki skila, ó nei, ó nei.
Og ég vil það,
gef þér gjöf með engum skilamiða.
Þegar þú blikkar
og gefur mér gjöf sem
ég mun ekki skila, ó nei, ó nei.
Og ég vil það,
gef þér gjöf með engum skilamiða.

Þegar þú blikkar mig
Þá kemur eitthvað yfir mig
og ég vil það svo mikið,
einungis ein gjöf
og hún er frá mér til þín.

[af smáskífunni Herra Hnetusmjör (feat. Björgvin Halldórsson – Þegar þú blikkar]