Undirheimar
(Lag Björn Jörundur Friðbjörnsson / texti Björn Jörundur Friðbjörnsson og Daníel Ágúst Haraldsson)
Inn göngin skríður
ávalur smurður
blindur áfram berst.
Í iðrum jarðar
aðstæður aðrar.
Maðkur étur hold,
við umbreytumst öll í mold.
Ormur grefur undirgöng,
undirheimaleiðin þröng.
Mjakast minna upp á við,
mokar yfir dagsljósið.
Á dreggjum nærist
dagljósið forðast.
Neðanjarðarhreyfing verður til.
Milli skilur örþunnt moldarþil,
afhjúpast við regnsins þunga byl.
Ormur grefur undirgöng,
undirheimaleiðin þröng.
Mjakast minna upp á við, mokar yfir dagsljósið.
[af plötunni Nýdönsk – Hunang]














































