Út í veður og vind

Út í veður og vind
(Lag og texti: Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)

Ég legg metnað minn í það að míga úti
og í mannskaðanum varð ég undir vegg.
Í Stangarholti kúldrast ég hjá Knúti
og Kristínu, sem spælir okkur egg.

O, ó, út í veður og vind,
o, ó – vatns- ég lita mynd, undan vindi.

Ég migið hef í mörgu dimmu skoti
og meira´að segja bak við hús hjá þér.
Þótt nýtískuleg salernin ég noti
er nepjan betri til að hægja á sér.

O, ó, út í veður og vind,
o, ó – vatns- ég      lita mynd, undan vindi.

Afi kenndi mér sem ungum pilti
aldrei að láta deigan síga
og þegar kuldinn kvikasilfrið tryllti,
hann kenndi mér í lófana að míga.

O, ó, út í veður og vind,
o, ó – vatns- ég      lita mynd, undan vindi.

Og eftir því sem árin færast yfir,
takk fyrir.

[m.a. á plötunni Stuðmenn – Tvöfalda bítið]