Útlendingahræðslan (1988-89)

Hljómsveit sem bar nafnið Útlendingahræðslan starfaði líkast til á Dalvík en lék m.a. á Akureyri í byrjun árs 1989 og hefur þ.a.l. verið starfandi að minnsta kosti frá 1988.

Valur Freyr Halldórsson trommuleikari, Jón Ómar Árnason gítarleikari og Sigurður Jósep [?] bassaleikari skipuðu þessa sveit en þeir voru á unglingsaldri. Útlendingahræðslan mun hafa farið utan til Álaborgar í Danmörku til að spila og auk þess leikið nokkuð opinberlega hér heima meðan hún starfaði.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.