Afmælisbörn 13. ágúst 2015

Einar Ágúst1

Einar Ágúst

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjögur talsins í dag:

Norðfirðingurinn Einar Ágúst Víðisson tónlistarmaður á fjörutíu og tveggja ára afmæli. Einar Ágúst var í hljómsveitum á yngri árum á heimaslóðum s.s. Kannsky, Fiskilykt og Ozon áður en hann gekk til liðs við Selfyssingana í Skítamóral og varð þjóðþekktur söngvari. Síðan hefur hann verið í ýmsum skammlífum hljómsveitum eins og Englum, Phönix, Svörtu sauðunum og Taktík auk þess að hafa unnið og gefið út sólóefni, tekið þátt í og sigrað lagakeppnir eins og Landslagið og undankeppni Eurovision en hann fór einmitt í lokaúrslit síðarnefndu keppninnar ásamt Telmu Ágústsdóttur árið 2000.

Tvíburarnir Einar Vilberg bassaleikari og gítarleikarinn Stefán Vilberg Einarssynir eiga einnig afmæli í dag en þeir eiga þrjátíu og eins árs afmæli. Þeir bræður voru um tíma áberandi í sveitum eins og Noise sem hefur gefið út nokkrar plötur, og er reyndar enn starfandi.

Leifur Þórarinsson tónskáld átti einnig þennan afmælisdag en hann var fæddur 1934. Hann nam fiðluleik, tónfræði og tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík en fór síðan í tónsmíðanám til Austurríkis, Þýskalands og Bandaríkjanna. Eftir Leif liggja fjölmörg tónverk aðallega í formi kammerverka en hann samdi einnig tónlist fyrir leikhús. Leifur lést 1998.