Afmælisbörn 23. ágúst 2015

Jón Elvar Hafsteinsson

Jón Elvar Hafsteinsson

Afmælisbörnin eru tvö talsins á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Jón Elvar Hafsteinsson gítarleikari og kokkur er fjörutíu og átta ára gamall. Margir muna eftir honum síðhærðum með Stjórninni þegar Eitt lag enn tröllreið öllu hér á landi en Jón Elvar hefur einnig leikið með sveitum eins og Sigtryggi dyraverði, Singultus, Hjartagosunum, Dykk, Delizie Italiane, Dægurlagacombói Jóns Ólafssonar og Sikk svo dæmi séu tekin, auk þess að starfa sem upptökumaður.

Brynja Guðmundsdóttir túbuleikari á einnig afmæli í dag en hún er þrjátíu og þriggja ára gömul. Brynja er ein Wonderbrass stúlkna sem léku og sungu með Björku á tónleikaferðum en hún hefur einnig leikið á fjölmörgum plötum. Brynja leikur á ýmis önnur hljóðfæri, einkum blásturshljóðfæri, og hefur nokkuð fengist við tónlistarkennslu.