Afmælisbörn 13. nóvember 2015

Ingibjörg Guðjónsdóttir

Ingibjörg Guðjónsdóttir

Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni:

Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og kórstjórnandi er fimmtug í dag. Hún gaf út plötu með óperuaríum fyrir um tíu árum og einnig djassskotnu plötuna Ó ó Ingibjörg, ásamt bræðrum sínum tveim árum síðar, hún hefur aukinheldur sungið inn á nokkrar aðrar plötur. Ingibjörg hefur stjórnað Kvennakór Garðabæjar og kvennakórnum Seljum sem dæmi.

Arnþór Örlygsson (of kallaður Addi 800) upptökumaður er 45 ára, hann hefur stýrt upptökum, tekið upp og hljóðblandað margar af vinsælustu plötum landsins seinni ára, þar má til dæmis nefna plötur Lands og sona, Stuðmanna, Þúsunda andlita og Bubba Morthens. Þess má geta að hann lék á gítar með hljómsveitinni Blautum dropum fyrir margt löngu.

Matthías Jochumsson ljóðskáld (1835-1920) átti ennfremur afmæli þennan dag, hann orti m.a. ljóðið við þjóðsöng okkar Íslendinga, Lofsöng (Ó, guð vors lands) og ljóðið Minni kvenna (Fósturlandsins freyja) svo dæmi séu tekin.