
Júníus Meyvant á Airwaves í fyrra
Óhætt er að segja að síðustu tvö ár hafa verið gæfurík fyrir tónlistarmanninn Júníus Meyvant. Vestmannaeyingurinn Júníus sem heitir réttu nafni Unnar Gísli Sigurmundsson sendi í fyrra frá sér sína fyrstu þröngskífu og vakti hún mikla lukku hérlendis sem og í Skandinavíu. Júníus var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti söngvari ársins í fyrra og hlaut einnig tilnefningu fyrir besta lagið. Júníus var einnig iðinn við tónleikahald á Íslandi sem og á erlendri grundu í fyrra og mun ekki slá slöku við í ár.
Þröngskífa Júníusar er samnefnd og innheldur tvö af vinsælari lögum Júníusar sem allmargir landsmenn þekkja. Skífunni var vel tekið tekið af hlustendum Rásar 2 og var einnig tekið vel í hana af útvarpsstöðvum á borð við KEXP, Radio X, BBC Radio London og Amazing Radio.
Fyrsta breiðskífa Júníusar kemur út 8. júlí næstkomandi og hefur hún hlotið nafnið „Floating Harmonies“. Út er komin smáskífan „Neon Experience“ sem hefur notið töluverðra vinsælda.
Júníus hefur ásamt fylgdarliði sínu lokið við skipulagningu á tónleikaferð um Evrópu í september næstkomandi. Alls eru tónleikarnir sem tilkynntir eru í dag átján talsins, víðsvegar í Evrópu.
Í dag kemur einnig út lifandi myndband við lagið Neon Experience sem tekið var upp í Stúdíó Sýrlandi á síðasta ári. Tónlistarmyndband er væntanlegt við lagið síðar í þessum mánuði.
Hér má sjá myndbandið úr Stúdíó Sýrlandi: https://youtu.be/ObQxyAHwISc
Hér eru dagsetningarnar fyrir tónleikaferð Júníusar.














































