
Gísli Jóhannsson
Í dag eru á skrá Glatkistunnar tvö afmælisbörn:
Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari er hvorki meira né minna en áttræður á þessum degi og á því stórafmæli, enginn veit hversu oft hann lék undir við „síðasta lag fyrir fréttir“ en mun vera þó vera oftar en nokkur annar. Ólafur nam píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík en lauk síðan framhaldsnámi í London í kjölfarið. Hann var lengi skólastjóri Tónlistarskólans í Mosfellsbæ og hefur leikið inn á nokkra tugi hljómplatna undir söng kóra og einsöngvara.
Gísli Már Jóhannsson kántrísöngvari eða Gis Johannsson eins og hann kallar sig, er fjörtíu og níu ára gamall í dag. Hann gaf út tvær sólóplötur fljótlega eftir aldamót og eina að auki með hljómsveit sinni The Big city. Hann vakti athygli fyrir enska útgáfu af laginu Traustur vinur en lítið hefur spurst til hans á kántrísviðinu síðustu árin. Hann býr í Bandaríkjunum.














































