Ég fer í nótt
(Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson)
Komdu nær mér svo ég heyri hjartað slá,
hjartað sem í útlegð minni einn ég á.
Ástarorð sem ég vil muna hvíslað hljótt.
Handtak blítt mér leyf að geyma – ég fer í nótt.
Horfa vil ég andartak í augu þér,
augun sem að hvert mitt fótmál lýsa mér.
Kveðjukossinn gef þú mér svo heitt og hljótt
og hann ég geymi á vörum mínum – ég fer í nótt.
Andi þinn sem augu birta mér
og ástarorð sem brenna á vör,
munu fylgja mér um fjarlæg lönd
og fylgja mér í hinstu för.
Horfa vil ég andartak í augu þér,
augun sem að hvert mitt fótmál lýsa mér.
Kveðjukossinn gef þú mér svo heitt og hljótt
og hann ég geymi á vörum mínum – ég fer í nótt.
[á plötunni Elly og Vilhjálmur Vilhjálms – Systkinin Elly og Vilhjálmur syngja saman]














































