Ómissandi fólk
(Lag / texti: Magnús Eiríksson)
Allsnakinn kemurðu í heiminn
og allsnakinn ferðu burt
frá þessum steindauðu hlutum
sem þér fannst þú hafa dregið á þurrt.
Og eftir lífsins vegi,
maður fer það sem fært er.
En veistu á miðjum degi
dauðinn tekur mál af þér.
Ofmetnastu ekki
af lífsins móðurmjólk.
Í kirkjugörðum heimsins
hvílir ómissandi fólk.
[m.a. á plötunni KK & Magnús Eiríksson – Ómissandi fólk]














































