Öxar við ána
(Lag / texti: Helgi Helgason / Steingrímur Thorsteinsson)
Öxar við ána árdags í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á Þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum, tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
[m.a. á plötunni Sönglögin í leikskólanum 3 – ýmsir]














































