Afmælisbörn 24. mars 2017

Gylfi Kristinsson

Á þessum degi er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:

Gylfi Kristinsson söngvari er sextíu og fimm ára en honum skýtur reglulega upp í hinum ýmsu hljómsveitum. Gylfi var til að mynda í upphaflegu útgáfunni af Stuðmönnum sem einnig hefur verið kölluð Frummenn, og gaf út plötu fyrir nokkrum árum. Hann var einnig í sveitum eins og Rifsberju, Hassansmjör (sem var einn forveri Spilverks þjóðanna) og Frugg og kom við sögu á plötu Jolla & Kóla, hann söng einnig á frægri Barbapapa plötu sem sést reglulega á nytjamörkuðum borgarinnar.