
Aðalsteinn Ísfjörð
Í dag er eitt afmælisbarn á lista Glatkistunnar:
Aðalsteinn Ísfjörð (Sigurpálsson) harmonikkuleikari og múrarameistari er sjötíu og eins árs gamall í dag. Aðalsteinn sem er Húsvíkingur hefur komið víða við á sínum ferli sem harmonikkuleikari, gefið út sólóplötur og í samvinnu við aðra, og leikið með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þar má nefna sveitir eins og Hljómsveit Illuga, Víbra, Húsavíkur-Hauka og GH kvartett en hann hefur ennfremur kennt á harmonikku við Tónlistarskólann á Húsavík og var einn af stofnendum Harmonikkufélags Þingeyinga.