Bjarkarlandsbræður (1953-60)

Bræðurnir Trausti, Bragi og Sigurður Árnasynir frá Bjarkarlandi í V-Eyjafjallahreppi léku á árum áður margsinnis á dansleikjum í sinni heimabyggð og jafnvel víðar. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær en það hefur líklega verið á sjötta og fram á sjöunda áratug síðustu aldar.

Þeir Bjarkarlandsbræður eins og þeir voru kallaðir, léku ýmist tveir eða þrír saman og sjálfsagt hefur Trausti komið fram einn einnig en hann lék á harmonikku. Sigurður var gítarleikari og Bragi trommuleikari. Pétur Karlsson kom stundum fram með þeim sem saxófónleikari og einnig söng Jónas Sveinsson stöku sinnum með sveitinni.