Upplýsingar um unglingahljómsveit starfandi á Eskifirði árin 1991 og 92 að minnsta kosti óskast sendar Glatkistunni. Sveitin var ýmist kölluð Bleikir fílar, Bleikir fílar og þrír í meðferð eða Bleikir fílar á leið í meðferð.
Vitað er að Jens Garðar Helgason hljómborðsleikari var í þessari sveit en upplýsingar um aðra meðlimi hennar vantar.
Sveitin mun hafa komið saman 2016 á nýjan leik.














































