
Vestanhafs
Tríóið Vestanhafs lék blúsrokk af ýmsu tagi á öldurhúsum höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar árið 1997, og fór þar víða.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Björgvin Gíslason gítarleikari, Jón Björgvinsson trommuleikari og Jón Kjartan Ingólfsson bassaleikari og söngvari.