Afmælisbörn 15. maí 2019

Rúnar Erlingsson

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Rúnar Erlingsson bassaleikari frá Raufarhöfn er sextíu og eins árs á þessum degi. Rúnars verður alltaf minnst sem eins af Utangarðsmönnum sem slógu í gegn sumarið 1980 en hann lék einnig með tengdum sveitum í kjölfarið, s.s. Bodies, Mögulegt óverdós, Puppets, Jasmini og Egó. Rúnar hefur alið manninn í Danmörku mörg undanfarin ár.