Söknuður [1]

Söknuður
Lag / texti: erlent lag / Stefán Gunnar Stefánsson

Er ég hitti þig einn haustdag
og hljótt var yfir bæ,
og gleði úr þínum augum skein,
ég gleymt því aldrei fæ.
Og við áttum oftar samleið,
því ástin var svo heit,
og vissum ein, hvað okkar beið,
ég aldrei af þér leit.

Svo kom sá dagur, sem sárnaði mér,
sú stund þá brást ég þér,
ástin mín ein, alltaf mun ég sakna þín.

Ei þig fæ að elska, en ég bíð og vona,
og ást mín, hún aldrei dvín,
örlögin voru svona –
Alltaf mun ég sakna þín.

Sit ég einn og hugsa, í draumi þeirra daga
og ást mín er heit til þín.
Þannig fór sú saga. –
Alltaf mun ég sakna þín.

Ei þig fæ að elska, en ég bíð og vona,
og ást mín, hún aldrei dvín,
örlögin voru svona –
Alltaf mun ég sakna þín.

Sit ég einn og hugsa, í draumi þeirra daga
og ást mín hún aldrei dvín.
Þannig fór sú saga,
alltaf mun ég sakna þín.

[m.a. á plötunni Óskalögin 3 – ýmsir]