
O.M.O. kvintett
Á Selfossi mun hafa starfað hljómsveit forðum daga undir nafninu O.M.O. kvintett, fyrir liggur að sveitin var starfandi árið 1958 en engar upplýsingar að finna um hversu lengi hún starfaði. Óskað er eftir upplýsingum þess efnis sem og fyrir hvað O.M.O. stendur fyrir.
Fjölmargir munu hafa leikið með hljómsveitinni þann tíma er hún starfaði en ekki er ljóst hverjir voru í henni á sama tíma. Meðal meðlima hennar hafa verið nefndir þeir Loftur S. Loftsson, Arnþór Guðnason, Dónald [Jóhannesson? (áður Donald Rader)], Ásbjörn Österby, Baldur Loftsson, Þráinn Kristjánsson, Gunnar Björgvin Guðmundsson, Rögnvaldur B. Árelíusson og Ormar Þorgrímsson, einhverjir framangreindra gætu hafa verið söngvarar með sveitinni en hér vantar einnig upplýsingar um hljóðfæraskipan hennar.














































