Ég ann þér enn

Ég ann þér enn
(Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson og Magnús Ingimarsson)

Minningarnar björtum geislum baðar
bernskusól er lít ég runna tíð.
Fram í hugann litli fossinn laðar
ljúfa mynd frá æskutíð.

Ég ann þér enn, þó aldrei greri
um heilt mitt hjartasár.
Ég á þig enn, þó árin hafi
þerrað votar brár.
Ég er þín enn og ekkert
getur fjötrað leynda þrá.
Mér vinur ertu hjá.
Þú veist, ég ann þér enn.

Manstu kveldið er þú hvergi smeykur,
kysstir mig og vafðir fast að þér.
Það sem aðeins virtist ljúfur leikur
lagði eld að brjósti mér.

Ég ann þér enn, þó aldrei greri
um heilt mitt hjartasár.
Ég á þig enn, þó árin hafi
þerrað votar brár.

Ég er þín enn og ekkert
getur fjötrað leynda þrá.
Mér vinur ertu hjá.
Þú veist, ég ann þér enn.

[m.a. á plötunni Stelpurnar okkar – ýmsir]