
Clírótes
Hljómsveitin Clírótes frá Þorlákshöfn starfaði árið 1976 að minnsta kosti og lék þá um sumarið á nokkrum dansleikjum með hljómsveitinni Haukum, sveitin gæti þá hafa verið starfandi í einhvern tíma á undan.
Meðlimir Clírótes voru Hjörleifur Brynjólfsson bassasleikari, Heimir Davíðsson [?] og Ómar Berg Ásbergsson gítarleikari og söngvari, samkvæmt myndinni sem fylgir þessari umfjöllun var fjórði meðlimurinn í sveitinni og óskar Glatkistan eftir upplýsingum um hann.