Haustið ´75
(Lag / texti: Valgeir Guðjónsson)
Það var um haustið ´75,
þið spiluðuð hér og nóttin var dimm,
við gengum saman út með sjó
þegar ballið var búið.
Við horfðum á mánann drykklanga stund
og Afganfeld lögðum á döggvota grund,
við áttum saman ástarfund
þegar ballið var búið.
Það er ekkert upp á hann að klaga,
edrú alla daga,
ávallt hefur borgað meðlagið.
Hann er vænn við menn og málleysingja,
létt er æ hans pyngja
því margvíslegt hann styrkir málefnið.
Þið hurfuð í rykmetti suður um fjör
en eftir sat ég og eignaðist Hörð,
þú sáðir fræi‘ í frjóan svörð
þegar ballið var búið,
þegar ballið, ballið, ballið var búið,
þegar ballið, ballið, ballið var búið.
Það er ekkert upp á hann að klaga,
edrú alla daga,
ávallt hefur borgað meðlagið.
Hann er vænn við menn og málleysingja,
létt er æ hans pyngja
því margvíslegt hann styrkir málefnið.
Það er ekkert upp á hann að klaga,
edrú alla daga,
ávallt hefur borgað meðlagið.
Hann er vænn við menn og málleysingja,
létt er æ hans pyngja
því margvíslegt hann styrkir málefnið.
[af plötunni Með allt á hreinu – úr kvikmynd]














































