Afmælisbörn 19. desember 2020

Ómar Diðriksson

Á þessum degi eru fjögur afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Ómar Diðriksson trúbador og hárskeri er fimmtíu og átta ára gamall. Hann hefur starfrækt eigin sveitir, Síðasta sjens, Tríó Ómars Diðrikssonar og Sveitasyni, en hefur einnig gefið út nokkrar sólóplötur og í samstarfi við Karlakór Rangæinga. Hann býr nú í Noregi

Gréta Sigurjónsdóttir gítarleikari Dúkkulísanna frá Egilsstöðum er fimmtíu og fimm ára gömul í dag, Gréta er auðvitað þekktust fyrir framlag sitt með Dúkkulísunum sem sigruðu Músíktilraunir árið 1983 en hún hefur starfað að mestu fyrir austan og þá með sveitum eins og Teppinu hennar tengdamömmu, Ökklabandinu, Bergmáli, Hljómsveit Hreggviðs Jónssonar, XD3 og Nefndinni svo nöfn séu nefnd. Gréta sendi frá sér plötuna Glópagull árið 2000 og er enn að vinna tónlist.

Þá á bassaleikarinn Snorri Hergill Kristjánsson fjörutíu og sex ára afmæli á þessum degi en hann lék hér forðum á bassa með ýmsum misþekktum sveitum s.s. The Eighties (síðar Moonboots), Zorglúbb, Kalk og Klamedíu X.

Að síðustu er hér nefndur trommuleikarinn Sigfús (Örn) Óttarsson (Fúsi Óttars) frá Akureyri en hann er fimmtíu og þriggja ára gamall í dag. Sigfús vakti fyrst athygli með Baraflokknum en hefur síðan þá leikið með fjöldanum öllum af þekktum og óþekktum hljómsveitum, þar á meðal má nefna Rikshaw, Dægurlagapönksveitina Húfu, PKK, Jagúar, Alvöruna, Brimkló og KK-band en þó eru aðeins hér örfáar upptaldar.

Vissir þú að Arnar Sævarsson úr Sogblettum er hálfbróðir Bjarkar Guðmundsdóttur?