Símakórinn (1991-2002)

Símakórinn

Kór var starfandi innan Félags íslenskra símamanna undir lok síðustu aldar og fram á þessa öld, undir nafninu Símakórinn. Kórinn söng reglulega á tónleikum meðan hann starfaði og fór m.a. til Svíþjóðar sumarið 2002 ásamt fleiri íslenskum kórum til að taka þátt í norrænu kóramóti alþýðukóra.

Heimildir um Símakórinn eru takmarkaðar en hann virðist hafa verið stofnaður haustið 1991 og starfað fram á haustið 2002 að minnsta kosti, framan af undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar en ekki er ljóst hvort hann stýrði kórnum alla tíð. Upplýsingar þ.a.l. eru vel þegnar.