Skólahljómsveitir Miðbæjarskólans (1947-63)

Elstu heimildir um skólahljómsveit við Miðbæjarskólann eru frá því í kringum 1947 eða 48 en í gagnfræðadeild skólans starfræktu þá Hrafn Pálsson, Ólafur Stephensen og Stefán Stefánsson hljómsveit sem gekk reyndar undir nafninu S.O.S. tríóið og fjallað er um annars staðar á síðunni. Viðar Alfreðsson gæti einnig hafa leikið með þeim í nafni hljómsveitar skólans.

Skólahljómsveit mun hafa svo verið starfandi við Miðbæjarskólann veturinn 1962-63 en upplýsingar um þá sveit eru afar takmarkaðar – reyndar svo að það eina sem liggur fyrir um hana var að Helga Einarsdóttir gegndi hlutverki söngkonu í sveitinni. Óskað er eftir frekari upplýsingum um tilurð þessarar sveitar sem og annarra sveita sem kallast gætu skólahljómsveitir í Miðbæjarskólanum.