
Frá afhendingu Kraumsverðlaunanna 2020
Tilnefningar til Kraumsverðlunanna 2021 voru gerðar opinberar í gær, á Degi íslenskrar tónlistar en þau verða afhent síðar í þessum mánuði. Kraumsverðlaunin eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr ár hvert hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa verðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 má nefna Ásgeir, Cell7, Daníel Bjarnason, FM Belfast, Hildi Guðnadóttur, Hjaltalín, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Ólöfu Arnalds, Retro Stefson og Sóleyju.
Dómnefnd hefur nú valið 21 hljómsveitir og listamenn sem tilnefnd eru til Kraumverðlaunanna – hinn svokallaða Kraumslista og koma þau úr öllum áttum tónlistarinnar. Mikil gróska er í íslensku tónnlistarlífi hvað útgáfustarfsemi varðar og fór dómnefndin yfir og hlustaði á hátt í fjögur hundruð hljómplötur og útgáfur sem komu út á árinu. Sex breiðskífur af þeim þeim sem nú hafa verið tilnefndar munu hljóta Kraumsverðlaunin 2021.
Tilnefningarnar eru sem hér segir:
Bára Gísladóttir / Skúli Sverrisson – Caeli
Birnir – Bushido
BSÍ – Stundum þunglynd …en alltaf andfasísk
Countess Malaise – Maldita
Drengurinn fengurinn – Strákurinn fákurinn
Ekdikesis – Canvas Of A New Dawn
Elli Grill – Púströra fönk
Eva808 – Sultry Venom
Hist og – Hits of
Hush – Blackheart
Inspector Spacetime – Inspector Spacetime
Mikael Máni – Nostalgia Machine
Nonnimal – Hverfisgata
Pínu Litlar Peysur – PLP EP
Skrattar – Hellraiser IV
Slummi – ndm
Sóley – Mother Melancholia
Sucks to be you, Nigel – Tína blóm
Supersport! – Tveir Dagar
Tumi Árnason – H L Ý N U N
Ægir Sindri Bjarnason – The Earth Grew Uncertain
Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listmanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa frá upphafi rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum.
Það er Aurora velgerðarsjóður sem stendur að Kraumsverðlaununum.