Skólakór var starfræktur líklega einn vetur (1979-80) við grunnskólann á Tálknafirði (Tálknafjarðarskóla), reyndar er ekki alveg ljós undir hvaða nafni skólinn starfaði á þeim tíma.
Það mun hafa verið Sigurður G. Daníelsson sem stjórnaði kórnum þennan vetur (og hugsanlega lengur) en hann var þá tónlistarkennari og organisti á Tálknafirði og hafði verið það frá haustinu 1977 að minnsta og starfaði þar í nokkur ár.
Allar frekari upplýsingar um þenna skólakór mætti gjarnan senda Glatkistunni.