Afmælisbörn 26. júlí 2022

Sigga Beinteins

Fjögur afmælisbörn eru á listanum í dag hjá Glatkistunni:

Sigga Beinteins eða Sigríður María Beinteinsdóttir söngkona á stórafmæli en hún er sextug í dag. Hún vakti fyrst athygli fyrir sönghæfileika sína með HLH flokknum og með hljómsveitinni Kikk en varð með tímanum ein af ástsælustu söngkonum landsins, einkum í kjölfar þess að hún tók þátt fyrir hönd Íslands í Eurovision keppninni 1990 ásamt þáverandi hljómsveit sinni, Stjórninni, og lenti í fjórða sæti. Sigga hefur gefið út nokkrar sóló- og safnplötur, og starfað með flestum af stærstu tónlistarmönnum landsins bæði á plötum og á sviði.

Einnig á Hvergerðingurinn Sævar Þór Helgason skólastjóri og gítarleikari Á móti sól afmæli í dag en hann er fjörutíu og níu ára gamall. Hann hefur leikið með Á móti sól síðan 1998 en hefur einnig komið við sögu fjölda annarra sveita í Árnessýslu. Meðal þeirra má nefna Riff Reddhedd, Dansband Einars Bárðarsonar, Ljósmund og jafnvel Sólstrandargæjana sem hann lék með um tíma.

Þá er gítarleikarinn Gunnar Óskarsson fjörutíu og sjö ára gamall í dag en hann lék hér fyrrum með hljómsveitum eins og Stjörnukisa, Clockwork diabolus, Xerox og Pulsunni, hann kom þar af leiðandi við sögu á plötum fyrst nefndu sveitarinnar hér að framan.

Að síðustu er hér nefnd leik-, fjölmiðla- og tónlistarkonan Aðalheiður Ólafsdóttir (Heiða Ólafs) sem margir þekkja úr Eurovision undankeppnum, Frostrósum, Idolinu og hljómsveitinni Url en hún hefur jafnframt sent frá sér sólóefni á plötum, m.a. frumsamið. Þá hefur hún sungið á fjölmörgum plötum annarra listamanna og plötum tengdum leikhúsinu. Heiða fagnar fjörutíu og eins árs afmæli á þessum degi.

Vissir þú að Páll Óskar Hjálmtýsson söng inn á plötu með tónlist úr leikritinu Gúmmí Tarzan árið 1985?