Í Reykjavík starfaði unglingahljómsveit á fyrri hluta sjöunda áratugarins undir nafninu Strengir, auðvelt er að rugla þeirri sveit við aðra með sama nafni en sú sveit mun hafa „keypt“ nafnið af þessari þegar hún hætti störfum.
Strengir voru líklega stofnaðir haustið 1963 en hún kom fram á sjónarsviðið fljótlega eftir áramótin 1963-64 og lék þá gítartónlist í anda The Shadows, sveitin innihélt þó söngvara. Sveitin var í upphafi eins konar skólahljómsveit Gagnfræðaskóla verknáms og var framan af tríó sem þeir Sigurður Árnason bassaleikari og söngvari, Garðar Elíasson gítarleikari og Reynir Harðarson skipuðu, Arnar Sigurbjörnsson bættist svo í hópinn og þannig var sveitin skipuð uns Sigurður bassaleikari gekk til liðs við Tóna, en þá hætti hún störfum – í kjölfarið tók sveitin sem minnst er á hér að ofan við nafninu.
Strengir léku framan af aðallega á skólaböllum og sem pásusveit með öðrum sveitum, þeir félagar voru einnig á meðal sveita sem léku með The Telstars er sú sveit lék í Austurbæjarbíói haustið 1964, hugsanlega flokkaðist sveitin sem bítlasveit undir lokin.