
Leó R. Ólason
Eitt afmælisbarn kemur við tónlistarsögu Glatkistunnar í dag:
Leó (Reynir) Ólason hljómborðsleikari frá Siglufirði er sextíu og sjö ára gamall á þessum degi, hann hefur komið víða við á hljómsveitaferli sínum og hefur leikið með sveitum eins og Frum, Hendrix, Vönum mönnum og Miðaldamönnum auk fleiri. Leó hefur jafnframt gefið út efni í eigin nafni og haft veg og vanda af útgáfu platna sem tengjast heimabæ hans, Siglufirði.
Vissir þú að Stuðmannalagið Tívolí var upphaflega flutt af Spilverki þjóðanna – á ensku?














































