
Samúel Einarsson
Enn og aftur er heimurinn fullur af tónlistartengdum afmælisbörnum:
Kristján Hreinsson (Hreinsmögur) tónlistarmaður og tón- og textaskáld með meiru er sextíu og sex ára gamall á þessum degi. Fyrir utan að hafa samið mörg hundruð texta sem komið hafa út á plötum hefur Kristján gefið út fjölmargar plötur undir eigin nafni frá 1990.
Stefán (Guðmundur) Óskarsson trúbador frá Raufarhöfn fagnar stórafmæli en hann er sextugur í dag. Hann skemmti hér áður heilmikið á árshátíðum og skemmtunum um land allt um árabil og gaf árið 2000 út plötuna Rokk og rómantík.
Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona er fimmtíu og þriggja ára gömul í dag, hún á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana því hún er dóttir Svanhildar Jakobsdóttur og Ólafs Gauks Þórhallssonar. Anna Mjöll hefur sungið í Landslagskeppninni, Látúnsbarkakeppninni og Eurovision en hún flutti framlag Íslendinga, Sjúbídú, árið 1996. Hún hefur bæði gefið út sólóplötur og í samstarfi við móður sína. Anna Mjöll hefur búið í Bandaríkjunum um árabil.
Samúel (Jón) Einarsson (Sammi rakari) á Ísafirði átti afmæli á þessum degi en hann lést á síðasta ári. Samúel (fæddur 1948) var kunnur bassaleikari og lék með fjölda hljómsveita á Vestfjörðum, meðal þeirra má nefna hér sveitir eins og Sexmenn, Öx, Leones og svo auðvitað BG og Ingibjörg. Samúel sendi jafnframt frá sér eina sólóplötu.
Njáll Þórðarson hljómborðsleikari (fæddur 1974) hefði átt afmæli í dag en hann lést árið 2018 langt fyrir aldur fram. Njáll lék með ýmsum þekktum hljómsveitum eins og Vinum vors og blóma, Landi og sonum og Sælgætisgerðinni, og öðrum minna þekktum eins og Forte og Busunum.
Pétur (Wigelund) Kristjánsson var einnig fæddur á þessum degi en hann lést langt um aldur fram árið 2004. Pétur sem var fæddur 1952 var söngvari og bassaleikari fjölda hljómsveita á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum og var ein af skærustu poppstjörnum íslenskrar tónlistarsögu. Meðal sveita sem Pétur starfaði með voru Póker, Pops, Pelican, Start, Dúndrið, Paradís, Náttúra og Gargið svo einungis fáeinar séu nefndar. Auk þess gaf Pétur út plötur undir eigin nafni og starfaði með mörgum öðrum tónlistarmönnum.
Vissir þú að Bubbi Morthens og Hera Hjartardóttir fóru saman í tónleikaferð um landið haustið 2002?