Afmælisbörn 12. maí 2023

Helga Möller

Níu tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Helga Möller á sextíu og sex ára afmæli í dag. Helga er iðulega kölluð diskódrottning Íslands en einnig mætti kalla hana drottningu jólalaganna. Hún söng m.a. ásamt Jóhanni Helgasyni í dúettnum Þú og ég, auk Celsius, Moldrok, Melchior og Snörunum hún byrjaði reyndar sinn söngferil sem trúbador og er kunn fyrir Eurovision-framlag sitt með Icy-hópnum sem var frumraun Íslendinga í þeirri ágætu keppni.

Einar (Arnaldur) Melax hljómborðsleikari á sextíu og eins árs afmæli á þessum degi. Hann var hljómborðsleikari í nokkrum kunnum sveitum hér á árum áður s.s. Sykurmolunum, Fan Houtens Kókó og Kukli en einnig í minna þekktum sveitum eins og Rauðum fiskum, Baggabandinu og Reiðkonu í austurbænum. Hann hefur starfað við tónlistarkennslu hin síðustu ár en einnig nokkuð við kvikmyndatónsmíðar.

Valur Heiðar Sævarsson söngvari frá Vestmannaeyjum er fjörutíu og níu ára gamall í dag. Hann gerði garðinn frægan fyrir og um aldamótin með hljómsveit sinni Buttercup en síðan fór minna fyrir honum. Hann gaf þó út sólóplötuna Íslenska konan árið 2011 sem hlaut ágætar viðtökur.

Ellert Borgar Þorvaldsson tónlistarmaður og kennari frá Eskifirði er sjötíu og átta ára gamall á þessum degi. Ellert lék á árum áður með fjölda hljómsveita s.s. Húnum, Ómum, Tónatríóinu, Pónik, Hljómsveit Þorvaldssonar og Eskó en varð þekktastur fyrir framlag sitt með kennarabandinu Randver sem gaf út nokkrar plötur á áttunda áratugnum við nokkrar vinsældir.

Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður er sextíu og níu ára gamall. Hljómsveitaferill hans varð ekki langur, aðeins finnast heimildir um eina sveit sem hann starfaði með, bítlasveitina Fóna, en hann hefur hins vegar gert fjölda kvikmynda sem hafa sterka tónlistarlega skírskotun, þekktastar þeirra eru auðvitað Rokk í Reykjavík og Kúrekar norðursins.

Þuríður Baxter

Svanur Kristbergsson er fimmtíu og fimm ára gamall á þessum degi. Svanur gaf á sínum tíma út sólóplötuna Sink en einnig tvær plötur með dúettnum Birthmark, þá hefur hann verið í hljómsveitum eins og Skræpótta fuglinum, Guð sá til þín vonda barn og Orange empire svo dæmi séu nefnd.

Gísli Árnason tónlistarmaður er fjörutíu og sjö ára gamall í dag, Gísli gerði garðinn frægan með hljómsveitinni PPPönk seint á síðustu öld og lék þar á gítar og hljómborð en einnig hefur hann sungið og leikið á bassa með hljómsveitinni Moskvítsj, báðar sveitirnar störfuðu í Hafnarfirði.

Einnig hefði Árni Jónsson söngvari (1926-2008) átt afmæli á þessum degi. Hann nam hér heima hjá nöfnunum Sigurði Skagfield og Demetz en fór síðar til Ítalíu og Svíþjóðar til frekari söngnáms. Hann söng hér heima og erlendis við góðan orðstír en mun hafa hætt að sögn alltof snemma að syngja. Plata með söng hans kom út 1999, þá með upptökum frá Ríkisútvarpinu.

Þuríður Baxter mezzósópran söngkona hefði ennfremur átt þennan afmælisdag en hún lést árið 2012. Þuríður sem var fædd 1945, starfaði lengi hjá STEF sem skrifstofustjóri, hún söng í kórum og hóf söngnám þegar hún var komin á miðjan aldur og sendi þá frá sér tvær plötur sem hlutu ágætar viðtökur.

Vissir þú að nafnorðið kór var lengi notað sem hvorugkynsorð, sbr. Landskórið