Hippies (1968)

Óskað er eftir upplýsingum um táningahljómsveit sem starfaði í Garðahreppi (síðar Garðabæ) undir nafninu Hippies, sumarið 1968. Þá um sumarið var sveitin meðal þátttökusveita í hljómsveitakeppni sem haldin var í Húsafelli um verslunarmannahelgina.

Ekkert liggur fyrir um þessa sveit og því er óskað eftir öllum tiltækum upplýsingum um meðlimi hennar og hljóðfæraskipan, starfstíma og annað sem ætti heima í þessari umfjöllun.