Ég veit þú kemur (Þjóðhátíðarlag 1962)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Ási í Bæ)
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þótt kveðjan væri stutt í gær.
Ég trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tvær.
Og þá mun allt verða eins og var,
sko áður en þú veist, þú veist
og þetta eina sem útaf bar,
okkar á milli í friði leyst.
Og seinna þegar tunglið
hefur tölt um langan veg,
þá tölum við um drauminn
sem við elskum þú og ég.
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær.
Ég trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tvær.
[m.a. á plötunni Elly Vilhjálms – Heyr mína bær]














































