Pöbbabandið Gott starfaði á höfuðborgarsvæðinu sumarið og haustið 1990 en sveitin var skipuð þekktum tónlistarmönnum úr popp- og rokkgeiranum.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Eyjólfur Kristjánsson söngvari og gítarleikari, Ásgeir Óskarsson trommuleikari, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari og Þorsteinn Magnússon gítarleikari.
Sveitin virðist aðeins hafa starfað í fáa mánuði.














































