Í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1999)
(Lag / texti: Helgi Jónsson)
Heimaklettur heilsar hress að vanda,
Herjólfsdalur býður góðan dag.
Gleði ríkir milli álfa og anda,
á manna meðal raula lítið lag.
Er kvölda tekur, færast yfir mannskapinn
undurfagrir straumar, ljúfur blær.
Ástin kviknar, ljósadýrð um himininn
kveikt í hjörtum okkar alltaf fær.
viðlag
Brekkusöngur, bálkösturinn, allt á sínum stað
blíðar meyjar, vaskir sveinar saman fylgjast að.
Rómantík í rökkurhúmi varir ár og síð
þegar rjóðir vangar bera við frá bjarma á þjóðhátíð.
Morgunroðinn mókir yfir dalnum
meðan yfir tjöldin færist ró.
Lágur margur liggur nú í valnum,
sem um síðir lifnar aftur þó.
Er kvölda tekur, færast yfir mannskapinn
undurfagrir straumar, ljúfur blær.
Ástin kviknar, ljósadýrð um himininn
kveikt í hjörtum okkar alltaf fær.
viðlag
[m.a. á plötunni Í Dalnum – ýmsir]